Fara í efni

Bæjarhátíð í Suðurnesjabæ

Bæjarhátíð í Suðurnesjabæ

Bæjarhátíð Suðurnesjabæjar verður haldin hátíðleg dagana 21. - 27. ágúst næstkomandi. Grunnlitir hátíðarinnar eru bleikur og fjólublár. Undirbúningshópur bæjarhátíðarinnar hvetur íbúa og vinnustaði til þess að skreyta hjá sér, setja upp seríur og ljós og skapa stemningu í Suðurnesjabæ. Við hvetjum öll til að mæta og taka þátt í hátíðinni. Suðurnesjabær þakkar þeim fyrirtækjum sem hafa styrkt okkur á hátíðinni.

Laugardagurinn 19. ágúst 

Bókakynning í samkomuhúsinu í Sandgerði.

Lífssaga Didda Frissa verður kynnt í samkomuhúsinu í Sandgerði laugardaginn 19.ágúst kl 14:00. Öll velkomin og léttar kaffiveitingar verða í boði

Laugardagurinn 19. ágúst og sunnudagurinn 20.ágúst

Barna- og unglingaráð Reynis/Víðis heldur Suðurnesjabæjarmót í fótbolta fyrir 7. flokk og 8. flokk karla og kvenna.

Mánudagurinn 21. ágúst

Bókasafn Suðurnesjabæjar

Bókasafnið efnir til spilastundar frá kl 14:00 - 17:00 allir velkomnir að eiga notalega stund á bókasafninu.

Ljósaganga

Ljósaganga á stígnum á milli Garðs og Sandgerðis í umsjón Knattspyrnudeildar Reynis og Golfklúbbs Sandgerðis. Gengið frá Þekkingarsetrinu kl. 18:45 og Víðisvelli kl. 19:00. Ljós, Hreimur Örn Heimisson kemur og syngur, grill og kjötsúpa í boði Skólamatar. Göngugarpar eru hvattir til að koma vel skóaðir og klæddir eftir veðri í gönguna.

Þriðjudagurinn 22. ágúst

Sjósund við Bæjarskersfjöru 

Bylgja Baldursdóttir leiðir sjósund við Bæjarskersfjöru mæting er við innsiglingamerkið sunnan við Sjávargötu kl 19:00. 

Íþróttamiðstöðvar Suðurnesjabæjar 

20:00 - Pottakvöld kvenna í sundlauginni í Sandgerði í umsjón starfsmanna íþróttamiðstöðva. Athugið að 18 ára aldurstakmark er í laugina. Léttar veitingar í boði.

Miðvikudagurinn 23. Ágúst

Bókasafn Suðurnesjabæjar – föndurstund

Bókasafnið stendur fyrir föndurstund fyrir alla þá sem vilja frá kl 14:00 - 17:00

Samkomuhúsið í Sandgerði

Fjölskyldubingó kl 17:00-19:00 Pizzusala og sjoppa á staðnum.

Íþróttamiðstöðin Garði

Partýspinning 17:30. Álfheiður spinningkennari stendur fyrir partýspinning í 90 mínútur.

Gerðaskóli- streetball

Ungmennaráð Suðurnesjabæjar stendur fyrir Streetball móti ( körfuboltamót) kl 19:30 og er keppnin haldin í Gerðaskóla. Við hvetjum alla aldurshópa til að taka þátt og má skrá sig hér.

Sjósund

Guðríður S Brynjarsdóttir (Gauja) leiðir sjósund úti á Garðskaga og hefst sjósundið kl 20:30.

Lopapeysupartý í Þorsteinsbúð í Garði.

Ungmennaráð Suðurnesjabæjar stendur fyrir lopapeysupartýi í Þorsteinsbúð, björgunarsveitarhúsinu í Garðinum miðvikudaginn 23.ágúst kl 21:30 – 23:00. Daniil og Sigurður Smári mæta og halda uppi stemningu. Frítt er á viðburðinn sem er áfengis- og vímuefnalaus, léttar veitingar verða í boði og hvetjum við öll 15 ára og eldri til þess að mæta.

Fimmtudagurinn 24. ágúst

Bleikur/fjólublár dagur á starfstöðvum í Suðurnesjabæ  við hvetjum vinnustaði til að mæta í bleiku/fjólubláu.

Brons völlurinn - Sandgerði

Reynir – Kormákur Hvöt kl 18:00 á Brons vellinum.  

Samkomuhúsið í Sandgerði

Partýbingó í Samkomuhúsinu í Sandgerði með Evu Ruzu og Sigga Gunnars í umsjón Unglingaráð Reynis og Víðis. Bingóið hefst kl 21:00 og er 18 ára aldurstakmark inn á viðburðinn

Föstudagurinn 25. Ágúst

Grunnskólar Suðurnesjabæjar

Pizza veisla fyrir nemendur hjá grunnskólum Suðurnesjabæjar og óvænt atriði. 

Sandgerðishöfn

14:00 -18:00 – Hoppland mætir í heimsókn við Sandgerðishöfn. Hægt verður að leigja blautbúninga á viðráðanlegu verði.

Brons völlurinn - Sandgerði

15:30 - Norðurbær - Suðurbær. „Gamlar knattspyrnuhetjur takast á“.  

Reynisheimilið

Saltfisksveisla  hefst kl 19:15 í Reynisheimilinu. Mikilvægt að skrá sig hér - https://nordursudurbaer.is/skraning/

Samkomuhúsið í Sandgerði

Ball í Samkomuhúsinu í Sandgerði með Stuðlabandinu. Ballið byrjar kl 23:45 og kostar 4.500 kr. í forsölu og verður forsalan haldin í Reynisheimilinu 16. og 17. ágúst. Annars er verðið 5.500 kr. við hurð. Við vekjum athygli á því að 20 ára aldurstakmark er á viðburðinn.

Laugardagurinn 26. ágúst

Sandgerðishöfn

Dorgveiðikeppni við Sandgerðishöfn kl. 11:00 í umsjón Björgunarsveitarinnar Sigurvon. Verðlaunaafhending verður eftir veiðina.

Garðsskagi

Minningarskjöldur um Þormóðsslysið verður afhjúpaður á Garðskaga laugardaginn 26. ágúst kl. 12:00 á hádegi. Skjöldurinn verður aðgengilegur á sjóvarnargarðinum við Garðskagavita.

Hátíðarhöld á Garðsskaga í umsjón Knattspyrnufélagsins Víðis

Fjölskylduskemmtun kl.13:00-15:00. Kynnir skemmtunarinnar er Guðjón Davíð Karlsson (Gói)

  • Dagskrá sett af Magnúsi Stefánssyni bæjarstjóra
  • Leikskólar bæjarins syngja lög  
  • Danskompaní með sýningu   
  • Latibær  
  • Benedikt Búálfur í boði SI raflagna  
  • Diljá  
  • BMX brós   

Bubbluboltar, veltibíllinn og leiktæki frá Hopp og Skopp verða á svæðinu á meðan barnadagskráin er í gangi.

Bjórhlaup með Litla brugghúsinu kl.15:30

Litla Brugghúsið heldur bjórhlaup í annað sinn en hlaupið tókst ótrúlega vel í fyrra. Hlaupin verður bjórmíla sem þýðir samtals fjórir bjórar og 1,6 km. Þau sem náð hafa 20 ára aldri og eru ekki að keyra bíl geta tekið þátt. Það kostar 4000 kr. að taka þátt í hlaupinu og skal það greitt á staðnum áður en hlaupið hefst, en hægt er að greiða með bæði korti, peningum eða með að leggja inn á reikning 0542-26-680520 kt. 6805200380. Mæting er kl. 15:30 hjá Víðishúsinu en hlaupið hefst kl. 16:00 með fyrsta bjór en tvær bjórstöðvar verða á leiðinni og svo lokastöðin verður hjá okkur í Litla Brugghúsinu.

Við óskum eftir því að einstaklingar forskrái sig hér.

Í ár verða veitt tvenn verðlaun. Verðlaun verða fyrir fyrsta sætið og svo fær það lið eða einstaklingur sem er í flottasta búningnum verðlaun. En fyrst og fremst er þetta hlaup til að skemmta sér og njóta. Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum að taka þátt og skemmta sér. 

Kvöldskemmtun kl.20:00 á Garðsskaga. Kynnir kvöldskemmtunarinnar er Eva Ruza

  • Herbert Guðmundsson  
  • Stefanía Svavarsdóttir  
  • Aron Can   
  • XXX Rottweiler  
  • Matti Matt og hljómsveit  
  • Flugeldasýning í umsjón björgunarsveitarinnar Ægis.

Sjávarsetrið í Sandgerði 

Afmælisfögnuður Sjávarsetursins 
1 árs afmæli Sjávarsetursins verður fagnað í stórum stíl með "opnu sviði" sem hefst kl 23:00.
Hljómsveitin 3/4 mætir og öllum frjálst að leyfa hæfileikum sínum að blómstra, eigna sér sviðsljósið og grípa í fóninn. 

Sunnudagurinn 27. Ágúst

Golfklúbbur Sandgerðis 

Golfklúbbur Sandgerðis efnir til golfmóts og hefst mótið kl 09:00. Skráning er á golfbox.

Garðskagi

Sunnudaginn 27.ágúst verður fornbíla- og tækjadagur við safnið þar sem gestum gefst tækifæri til að skoða tæki og bíla af svæðinu kl.12:00 -17:00.

Af sama tilefni verður BSA A10 mótorhjól frá 1958 sýnt inni á safninu og tvær vélar úr Vélasafni Guðna Ingimundarsonar settar í gang kl. 15:00.

Perlur safnsins verða á sínum stað;
Verzlun Þorláks Benediktssonar verður opin, Húsin hans Sigga í Báru, örsýningarými safnsins er með tímabundna sýningu á herminjum, ágiskunarleikur safnsins ásamt fjöldanum öllum að spennandi munum.

Víðisvöllur - bílaplan

Bílabíó á Víðisplani. Tímasetning kemur síðar.

Söfn og áhugaverðir staðir í Suðurnesjabæ

Byggðasafnið á Garðskaga 

Í tilefni af Bæjarhátíð Suðurnesjabæjar dagana 21. – 27.ágúst opnar Byggðasafnið á Garðskaga nýja ljósmyndasýningu með myndum úr Suðurnesjabæ eftir Magnús Magnússon og fyrstu einkasýningu perlulistamannsins Hannesar Sveinlaugssonar.  Báðir listamennirnir búa í Suðurnesjabæ og eru þetta sölu- og uppboðssýning. Byggðasafnið er opið alla daga til loka september kl. 10:00-17:00. Aðgangur ókeypis.

Þekkingarsetur Suðurnesja

Opið laugardag og sunnudag kl 13:00 – 17:00. Aðgangur ókeypis.

Bókasafn Suðurnesjabæjar

Opið mánudaga-fimmtudaga kl 10:00-17:30. Föstudaga kl 10:00-12:00. Aðgangur ókeypis.

Sjólyst 

Opið laugardag og sunnudag frá kl.14:00-17:00. Aðgangur ókeypis.

El Faro

El faro Norðurljósavegi 2, Garði verður með 10% afslátt af öllu á matseðli fyrir utan tilboðin sem þau eru með nú þegar. Biðja þarf um afsláttinn við kassa þegar greitt er.

Eldhúsið er opið alla daga frá 17.00 - 21:30

Við vekjum athygli á því að dagskráin getur tekið breytingum og bætingum og hvetjum við því bæjarbúa að fylgjast með á heimasíðu Suðurnesjabæjar og facebooksíðu bæjarins. 

 

Við þökkum styrktaraðilum, sjálfboðaliðum, björgunarsveitum, og öllum þeim sem aðstoða okkur við að halda hátíðina.