Fara í efni

Jarðskjálftar

Jarðskjálftar verða þegar jarðskorpan brotnar eða hrekkur til á gömlum brotflötum. Þeir gera sjaldan boð á undan sér og því er mikilvægt að gera ráðstafanir til að draga úr tjóni við jarðskjálfta og læra rétt viðbrögð. Upplýsingar um forvarnir og viðbrögð eru fengnar af síðu Almannavarna.

Viðbrögð við jarðskjálfta

Ef þú ert innandyra þegar jarðskjálfti byrjar:

  • Haltu kyrru fyrir, mörg slys verða þegar hlaupið er af stað.
  • Farðu undir borð eða rúm, verðu höfuð og háls, haltu þér í sterkbyggð húsgögn.
  • Krjúptu niður í horni við burðarvegg eða í hurðaropi við burðarvegg – athugið að í nýjum húsum eru hurðarop oft ekki sérstaklega styrkt og þar er jafnan hurð sem getur sveiflast til. Gætið fyllstu varúðar og tryggið flóttaleið eftir skjálftann.
  • Verðu höfuð þitt og andlit með kodda ef þú vaknar upp við jarðskjálfta.
  • Haltu þig frá gluggum þar sem þeir geta brotnað.
  • Láttu þína nánustu vita af þér með SMS skilaboðum þegar jarðskjálftinn hættir.

Ef þú ert utandyra þegar þú finnur fyrir jarðskjálfta:

  • Vertu áfram úti og reyndu að finna skjól til að krjúpa, skýla, halda.
  • Reyndu að koma þér frá byggingum sem geta hrunið.
  • Grjóthrun, skriður og snjóflóð geta fallið úr hlíðum og fjalllendi.
  • Raflínur eru hættulegar ef þær slitna – varist að snerta þær.
  • Reyndu að komast á opið svæði þar sem byggingar þrengja ekki að.
  • Farðu frá ströndinni ef þú ert á svæði þar sem hætta er á flóðbylgju.

Ef þú ert að keyra þegar þú finnur jarðskjálfta:

  • Leggðu ökutæki og stoppaðu. Vegir og brýr geta skemmst í jarðskjálfta.
  • Hafðu sætisbeltin spennt.
  • Haltu kyrru fyrir ef þú ert í bíl þar sem hann getur varið þig gegn brotum og braki sem hægt er að verða fyrir í jarðskjálfta.
  • Hlustaðu á útvarpið, þar koma jafnan fyrstu upplýsingarnar um jarðskjálftann.
  • Ef vá ber að höndum og hættuástand ríkir verða leiðbeiningar um æskileg viðbrögð almennings gefnar um útvarp og sjónvarp ef kostur er.

Viðbúnaður vegna jarðskjálfta:

Varnir vegna jarðskjálfta:

Mikilvægt er að íbúar á þekktum jarðskjálftasvæðum geri ráðstafanir til að draga úr tjóni við jarðskjálfta. Það er hægt að gera á ýmsan hátt.

Húsgögn

  • Festið skápa, hillur og þunga muni í gólf eða vegg. Hafið hjól sem eru á húsgögnum alltaf í læstri stöðu. Ef engin læsing er á hjólunum, setjið þá ramma utan um hjólin til að koma í veg fyrir að húsgögnin fari af stað í jarðskjálfta. Munið hins vegar að rammi eða læsing á hjólum kemur ekki í veg fyrir að húsgögn velti. Festið létta skrautmuni með kennaratyggjó.

Húsgögn

Lausir munir og skrautmunir

  • Stillið þungum munum ekki ofarlega í hillur eða á veggi án þess að festa þá tryggilega. Hægt er að nota kennaratyggjó til að tryggja að léttari munir færist ekki úr stað við jarðskjálfta. Þungur borðbúnaður og hlutir eru best geymdir í neðri skápum, helst lokuðum.+

Kynditæki og ofnar

  • Festið kynditæki og ofna. Kynnið ykkur staðsetningu og lokun á vatnsinntaki og rafmagnstöflu. Festið hitaveituofna tryggilega. Leki getur valdið miklu tjóni ef ekki er lokað strax fyrir vatnið. Sama gildir um frágang á þvottavélum og uppþvottavélum.

Myndir, ljósakrónur

  • Festið myndir og ljósakrónur í lokaðar lykkjur.

Skápahurðir

  • Geymið þungan borðbúnað í neðri skápum / skúffum og setjið öryggislæsingar / barnalæsingar á skápahurðir til varnar að innihald þeirra falli út úr þeim.

Svefnstaðir

  • Fyrirbyggið að skápar, málverk, brothættir og þungir munir geti fallið á svefnstaði. Varist að hafa rúm við stóra glugga og hlaðna milliveggi.

Loft og gólf

  • Gangið vel frá niðurhengdum loftum og upphækkuðum gólfum.

Rúður

  • Byrgið fyrir glugga eða setjið öryggisfilmu á rúður til að koma í veg fyrir skæðadrífu glerbrota ef rúða brotnar. Látið rúm ekki standa undir gluggum ef hætta er á jarðskjálftum.

Tryggingar

  • Bætur Náttúruhamfaratryggingar Íslands á fasteignum eru miðaðar við brunatryggingar, sem eru skyldutryggingar. Mikilvægt er að innbústryggingar sem eru frjálsar tryggingar, séu sem næst raunverulegu verðmæti innbús svo tjón fáist að fullu bætt.

Útvarp og tilkynningar

  • Hlustið á tilkynningar og fyrirmæli sem gefin eru í útvarpi. Gott er að hafa útvarp með langbylgju ef FM sendar detta út. Þá er hægt að hlusta á útvarp í bílum.

Símar

  • Farsímar duga skammt ef rafmagn dettur út í lengri tíma. Þá getur verið gott að eiga hleðslutæki til að hafa í bifreið eða hleðslubanka til að hlaða farsíma. Sendu SMS til þinna nánustu í stað þess að hringja (sérstaklega eftir stóran jarðskjálfta) til að minnka álag á símkerfi í hamförum.

Á jarðskjálftasvæðum er hægt að draga úr afleiðingum jarðskjálfta með jarðskjálftaæfingum til að vera betur viðbúin þegar stór skjálfti verður.

Krjúpa, skýla og halda er orðaröð sem rétt er að leggja á minnið.

Krjúpa, skýla, halda

Gott er að krjúpa út í horni við burðarvegg eða undir borði, skýla höfði og halda sér í. Finndu staði heima hjá þér, í vinnunni eða í skólanum þar sem öruggt er að vera ef það verður jarðskjálfti.

Mikilvægt er að hafa ávallt viðlagakassa tilbúinn sem allir á heimilinu vita um:

Safnið neyðarbúnaði í saman í viðlagakassa. Þar má geyma sjúkrakassa, vasaljós, útvarp, eldspýtur, kerti, rafhlöður og ýmsar sérþarfir heimilismanna sem erfitt er að vera án.

Nánari upplýsingar um almannavarnir og viðbrögð:

Earthquake response

If you are indoor when the earthquake starts:

  • Stay put; many accidents occur when people run away.
  • Get under a table or a bed, covering your head and neck, holding on to your head and neck, hold on to solid furniture.
  • Ducking in the corner of a supporting wall or an open doorway at supporting wall - be aware that doorway in new houses are often not specially supported, and there can be a door that swings. Take the utmost care and secure an escape route after the earthquake.
  • Cover your head and face with a pillow if you wake up with earthquakes.
  • Stay away from windows where they may break.
  • Let your loved ones know about you through SMS when the earthquake stops.

If you are outside when the earthquake starts:

  • Stay outside and try to find shelter to duck, cover and hold.
  • Avoid buildings that can fall.
  • Falling rocks, gravel slides, and avalanches can fall from slopes and mountains.
  • Electric power lines are dangerous if they are worn - be careful not to touch them.
  • Find an open space and avoid buildings.
  • Avoid the beach if you are in an area where there is a risk of a tidal wave.

If you are driving when the earthquake starts:

  • Those who are driving should stop their vehicles in safe place.. Roads and bridges can be damaged in earthquakes.
  • keep your seatbelt fastened.
  • Stay put if you are inside a car as it can protect you from breakage and debris that can be exposed in an earthquake.
  • Listen to the radio, there is usually the first information about the earthquake.
  • In the event of a disaster and crisis situation, instructions on the public's desirable response will be provided on radio and television if possible.

Earthquake preparedness

Prevention:

Citizens in known earthquake areas must make arrangements to minimize the risk of damages due to earthquakes. There are several ways to do this.

Furniture:

  • Fix cabinets, shelves, and heavy items to the floor or walls. For furniture on wheels, always keep the wheels on the furniture in the locked position. If there is no locking mechanism on the wheels, place a frame around the wheels to prevent the furniture from moving during an earthquake. Remember, however, that a frame or lock on wheels does not prevent furniture from tipping over. Fix light ornamental items with adhesive putty.

Húsgögn

Loose items and ornaments:

  • Do not place heavy objects on the top shelves or hang them up on walls without securing them properly. Adhesive putty can be used to ensure that lighter objects do not move during an earthquake. Heavy tableware and other heavy items should be stored in the lowest unit of cabinets, preferably with a door that can be closed.

Heaters and radiators:

  • Secure heaters and radiators. Familiarize yourself with the fuse board's location and water intake and cut the water and current. Firmly secure the radiators. Leaks can cause major damage if the water intake is not cut off immediately. The same applies to the securing of washing machines and dishwashers.

Framed images, chandeliers:

  • Attach photos and chandeliers with closed loops.

Cabinet doors:

  • Store heavy tableware in the lower cabinet/drawer units, and place locks or child safety locks on cabinet doors to prevent the contents from spilling out during an earthquake.

Sleeping locations:

  • Prevent cabinets, paintings, fragile, and heavy objects from hitting places where people sleep. Avoid positioning beds next to large windows or brick/stone walls.

Ceilings and floors:

  • Secure suspended ceilings and raised floors.

Windows:

  • Cover windows or place a safety film on windows to prevent broken glass from spreading. Do not leave beds under windows if there is a risk of earthquakes.

Insurance:

  • The Icelandic Natural Disaster Insurance's property compensation is based on fire insurance, which is a compulsory insurance package.

Radio and announcements:

  • Listen to announcements and instructions on the radio. It is good to have a longwave radio, in case FM transmissions are interrupted. You can also listen to the radio in your car.

Phones:

  • Mobile phones will not work for long in the event of extended power failure. Then it can be good to have a mobile charger to keep in your vehicle or a power bank for mobile phones. Send a text message to your loved ones instead of calling (especially after a major earthquake) to reduce network load during disasters.

Earthquake drills:

In earthquake areas, the effects of earthquakes can be mitigated by performing regular earthquake drills to be better prepared in the event of a major earthquake:

DROP – COVER – HOLD ON is a series of words that you should memorize.

Guard against falling objects by: Ducking in an open doorway, covering the head (with one hand) and holding onto the doorway. Ducking in the corner of a supporting wall, covering the head and holding on, if possible. Ducking under a table, covering the head and holding onto a table leg.

Krjúpa, skýla, halda

It is essential to keep "an emergency preparedness kit "where everyone in your household can find it:

Collect emergencyequipment in an "emergency preparedness kit." It can store a First-aid medical kit, flashlight, radio with batteries, matches, candles, batteries, and other items that you or your family might need during an emergency.

Further information on civil defense and response:

Trzęsienia ziemi

Trzęsienia ziemi występują, gdy skorupa ziemska pęka lub kurczy się na starych pęknięciach. Rzadko są one przewidywane dlatego ważne jest, aby podjąć kroki w celu zmniejszenia szkód spowodowanych trzęsieniem ziemi i nauczyć się właściwej reakcji.

Reakcja na trzęsienie ziemi

Jeśli znajdujesz się w pomieszczeniu, w którym zaczyna się trzęsienie ziemi:

  • Podejdź pod stół lub łóżko, zakryj głowę i szyję, trzymaj się solidnych mebli.
  • Uklęknij w rogu lub w drzwiach przy ścianie nośnej.
  • Jeśli budzisz się z powodu trzęsienia ziemi, zakryj głowę i twarz poduszką.
  • Nie zbliżaj się do okien.
  • Poinformuj swoich bliskich o sobie za pośrednictwem wiadomości SMS, gdy trzęsienie ziemi ustanie.

Jeśli przebywasz na zewnątrz podczas trzęsienia ziemi:

  • Pozostań na zewnątrz i spróbuj znaleźć schronienie.
  • Staraj się unikać budynków, które mogą się zawalić.
  • Postaraj się dostać na otwartą przestrzeń, gdzie budynki nie są ograniczone.
  • Przewody energetyczne są niebezpieczne, jeśli są zużyte - uważaj, aby ich nie dotykać.

Jeśli prowadzisz samochód, gdy czujesz trzęsienie ziemi:

  • Zaparkuj pojazd i zatrzymaj się. Trzęsienia ziemi mogą spowodować uszkodzenie dróg i mostów.
  • Miej zapiete pasy.
  • Nie ruszaj się, jeśli jesteś w samochodzie, ponieważ może to ochronić Cię przed pęknięciami i gruzem, które mogą być narażone na trzęsienia ziemi.
  • Posłuchaj radia, gdzie pojawiają się pierwsze informacje o trzęsieniu ziemi.

Earthquake preparedness

Ochrona przed trzęsieniem ziemi:

Ważne jest, aby mieszkańcy znanych obszarów trzęsień ziemi podjęli kroki w celu zmniejszenia szkód spowodowanych trzęsieniem ziemi. Można to zrobić na kilka sposobów.

Meble:

  • Przymocuj szafki, półki i ciężkie przedmioty do podłogi lub ściany. W przypadku mebli wyposażonych na kółkach zawsze utrzymuj je w pozycji zablokowanej. Jeśli nie ma blokady na kołach, umieść ramę wokół kółek, aby zapobiec przesuwaniu się mebli podczas trzęsienia ziemi.

Luźne przedmioty i ozdoby:

  • Nie umieszczaj ciężkich przedmiotów wysoko na półkach lub ścianach bez ich bezpiecznego zamocowania. Można stosować masę plastelinową, aby lżejsze przedmioty nie poruszały się podczas trzęsienia ziemi. Ciężką zastawę stołową i inne przedmioty najlepiej przechowywać w dolnych szafkach, najlepiej zamkniętych.

Húsgögn

Grzejniki i piecyki:

  • Zamocuj grzejniki i piecyki. Zapoznaj się z lokalizacją zaworów poboru wody i tablicy elektrycznej. Zamocuj bezpiecznie kaloryfery. Wycieki mogą spowodować znaczne szkody, jeśli dopływ wody nie zostanie natychmiast zablokowany. To samo dotyczy zakończeń pralek i zmywarek.

Obrazy, żyrandole:

  • Umocuj obrazy i żyrandole za pomocą haków wyposażonych w zamknięcie zabezpieczające.

Drzwi szafek:

  • Ciężką zastawę stołową należy przechowywać w dolnych szafkach lub szufladach i umieszczać na drzwiczkach szafek blokady bezpieczeństwa przed dziećmi, aby zapobiec wypadnięciu zawartości.

Miejsca do spania:

  • Zabezpiecz miejsca do spania przed możliwością spadnięcia na nie szafek, obrazów, tłukących i ciężkich przedmiotów. Unikaj umieszczania łóżka przy dużych oknach i ciężkich ścianach działowych.

Sufity i podłogi:

  • Zamocuj odpowiednio podwieszane sufity i podniesione podłogi.

Szyby:

  • Zasłoń okna lub umieść folię ochronną na szybach, aby zapobiec rozpryśnięciu się odłamków szkła w przypadku wybicia szyby. Nie zostawiaj łóżka pod oknami, jeśli istnieje ryzyko trzęsienia ziemi.

Ubezpieczenie:

  • Odszkodowanie z islandzkiego ubezpieczenia od klęsk żywiołowych dla nieruchomości jest oparte na ubezpieczeniu od ognia (brunabótatrygging), które jest obowiązkowym ubezpieczeniem.

Radio i ogłoszenia:

  • Słuchaj komunikatów i instrukcji podawanych w radiu. Dobrze jest mieć radio z długimi falami, na wypadek uszkodzenia nadajników FM. Można wówczas słuchać radia samochodowego.

Telefony:

  • Telefony komórkowe wystarczają na krótko, jeśli prąd jest odcięty przez długi czas. W takim wypadku dobrze jest mieć ładowarkę samochodową lub bank ładujący do ładowania telefonu komórkowego.

Ćwiczenia dotyczące trzęsień ziemi:

Na obszarach objętych trzęsieniami ziemi skutki trzęsień ziemi można złagodzić, przeprowadzając regularne ćwiczenia związane z trzęsieniami ziemi, aby lepiej przygotować się na wypadek poważnego trzęsienia ziemi:

KLĘKNIJ – ZASŁOŃ – TRZYMAJ to seria słów, które należy zapamiętać

Chroń się przed spadającymi przedmiotami poprzez: Uchylenie się w otwartych drzwiach, zakrycie głowy (jedną ręką) i trzymanie się drzwi. Schowaj się w rogu ściany nośnej, zakryj głowę i trzymaj się, jeśli to możliwe. Schylanie się pod stołem, zakrywanie głowy i trzymanie się nogi stołu.

Krjúpa, skýla, halda

Koniecznie przechowuj „zestaw gotowości na wypadek sytuacji awaryjnych”, w którym każdy domownik będzie mógł go znaleźć:

Zbierz sprzęt awaryjny w „zestawie gotowości na wypadek sytuacji awaryjnych”. Pomieści apteczkę, latarkę, radio z bateriami, zapałki, świece, baterie i inne przedmioty, których Ty lub Twoja rodzina możecie potrzebować w sytuacji awaryjnej.

Dalsze informacje na temat obrony cywilnej i reagowania:

Getum við bætt efni síðunnar?