Fara í efni

Heilsueflandi samfélag

logo heilsueflandi samfélags

Suðurnesjabær varð formlega aðili að Heilsueflandi samfélagi (HSAM) þann 14. janúar sl. þegar Magnús Stefánsson bæjarstjóri og Alma D. Möller landlæknir undirrituðu samning þess efnis í hátíðarsal Gerðaskóla. Athöfnin var haldin í tengslum við útnefningu íþróttamanns Suðurnesjabæjar. Í ágúst síðastliðnum var undirrituð viljayfirlýsing um HSAM á Suðurnesjum, sú fyrsta sinna tegundar.

Meginmarkmið Heilsueflandi samfélags er að styðja samfélög í að vinna með markvissum hætti að því að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum, heilsu og vellíðan allra íbúa. Í slíku samfélagi er heilsa og líðan íbúa í fyrirrúmi í stefnumótun og aðgerðum á öllum sviðum. Með innleiðingu Heilsueflandi samfélags vinna sveitarfélög einnig m.a. að innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. 

Hvað er heilsueflandi samfélag?

 Heilsuvera er vefur fyrir almenning um heilsu og áhrifaþætti hennar. Markmið Heilsuveru er að auka aðgengi almennings að eigin heilbrigðisupplýsingum, auka þjónustu almennings í heilbrigðiskerfinu og jafnframt að koma á framfæri áreiðanlegri þekkingu um þroska, heilsu og áhrifaþætti heilbrigðis.

Heilsuvera

Getum við bætt efni síðunnar?