Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar

Alexandra Jóhannesdóttir er bæjarstjóri Suðurnesjabæjar. Alexandra hóf störf í ágúst 2026, en hún var ráðin af bæjarstjórn þann 15. júlí sama ár úr hópi 26 umsækjenda.
Hlutverk bæjarstjóra
Bæjarstjóri er framkvæmdastjóri sveitarfélagsins og æðsti yfirmaður starfsliðs stjórnsýslunnar. Hann hefur á hendi framkvæmd ákvarðana bæjarstjórnar og bæjarmálefna, kemur fram fyrir hönd sveitarfélagsins og ber ábyrgð á daglegum rekstri, mannauðsmálum og fjármálum Suðurnesjabæjar í samræmi við stefnu bæjarstjórnar. Þá undirbýr bæjarstjóri fundi bæjarráðs og bæjarstjórnar og situr þá fundi með málfrelsi og tillögurétt.
Um bæjarstjóra
Alexandra kemur til Suðurnesjabæjar með átta ára reynslu sem sveitar- og hafnarstjóri á Skagaströnd en þar starfaði hún frá 2018-2026.
Hún hefur einnig starfað sem framkvæmdastjóri félags- og skólaþjónustu Austur-Húnavatnssýslu og gegnt ýmsum trúnaðar- og stjórnarstörfum, meðal annars sem formaður Almannavarnarnefndar Austur-Húnavatnssýslu, varaformaður Samgönguráðs og varaformaður Hafnasambands Íslands. Áður á ferlinum starfaði hún sem lögfræðingur hjá Listahátíð í Reykjavík og Fiskistofu. Alexandra er með B.A.- og Mag.jur.-gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands.
Alexandra hefur alla tíð haft brennandi áhuga á samfélagsþróun og uppbyggingu innviða — og trúir því að Suðurnesjabær hafi alla burði til að vera meðal framsæknustu sveitarfélaga landsins. Hún leggur áherslu á að byggja á þeim styrkleikum sem samfélagið býr þegar yfir, vinna markvisst að sameiginlegum markmiðum og skapa umhverfi þar sem góðar hugmyndir fá að verða að veruleika.
„Þegar við byggjum á því sem sameinar okkur, tölum af metnaði fyrir hönd sveitarfélagsins og vinnum saman að skýrri framtíðarsýn, skapast bestu forsendurnar fyrir áframhaldandi sókn. Ég trúi því að sá tími sé núna.“
— Alexandra Jóhannesdóttir, bæjarstjóri
Á næstu vikum og mánuðum hlakkar Alexandra til að kynnast samfélaginu betur — hitta íbúa, starfsfólk, kjörna fulltrúa og atvinnulífið og heimsækja starfsstöðvar, fyrirtæki og stofnanir vítt og breitt um Suðurnesjabæ.
Viðtalstímar bæjarstjóra
Bæjarstjóri er með viðtalstíma á fimmtudögum frá klukkan 11:00 til 12:00. Hér er hægt að bóka viðtalstíma.