Fara í efni

Heilsueflandi samfélag

 

logo heilsueflandi samfélags

Suðurnesjabær varð formlega aðili að heilsueflandi samfélagi (HSAM) þann 14. janúar 2020, þegar Magnús Stefánsson bæjarstjóri og Alma D. Möller landlæknir undirrituðu samning þess efnis í hátíðarsal Gerðaskóla. Athöfnin var haldin í tengslum við útnefningu íþróttamanns Suðurnesjabæjar. Í ágúst síðastliðnum var undirrituð viljayfirlýsing um Heilsueflandi samfélag á Suðurnesjum, sú fyrsta sinna tegundar.

Meginmarkmið Heilsueflandi samfélags er að styðja samfélög í að vinna með markvissum hætti að því að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum, heilsu og vellíðan allra íbúa. Í slíku samfélagi er heilsa og líðan íbúa í fyrirrúmi í stefnumótun og aðgerðum á öllum sviðum. Með innleiðingu heilsueflandi samfélags vinna sveitarfélög einnig m.a. að innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. 

Hvað er heilsueflandi samfélag?

 

Getum við bætt efni síðunnar?