Fara í efni

Framkvæmda- og skipulagsráð

49. fundur 23. nóvember 2023 kl. 16:00 - 16:52 í Ráðhúsinu í Garði
Nefndarmenn
  • Einar Jón Pálsson formaður
  • Guðlaug Helga Sigurðardóttir aðalmaður
  • Gísli Jónatan Pálsson aðalmaður
  • Jón Ragnar Ástþórsson aðalmaður
  • Elín Frímannsdóttir aðalmaður
Fundargerð ritaði: Jón Ben Einarsson skipulags- og byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Vatnsupptaka í Árnarétt - Beiðni um umsögn

2311030

Orkustofnun óskar eftir umsögn Suðurnesjabæjar vegna umsóknar HS Veitna um nýtingarleyfi í tengslum við umsókn HS Veitna um framkvæmdarleyfi til vatnsupptöku í Árnarétt. Erindi tekið til afgreiðslu 14. nóvember s.l. með póstsamskiptum ráðsins.
Vísað er í erindi frá Orkustofnun dags. 13. nóvember 2023, þar sem óskað er eftir umsögn Suðurnesjabæjar um umsókn HS Veitna um leyfi til nýtingar á allt að 100 l/s af grunnvatni úr brunnsvæði skilgreinds vatnsverndarsvæðis við Árnarétt í Suðurnesjabæ.
Með vísan til 3. mgr. 6. gr. laga nr. 57/1998, um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu, mælir Framkvæmda- og skipulagsráð Suðurnesjabæjar með því að umsókn HS Veitna hf verði samþykkt og telur framkvæmdina ekki hafa teljandi umhverfisáhrif og er í fullu samræmi við Aðalskipulag Suðurnesjabæjar 2022-2034.

2.Háspennustrengur frá GAR-A að Árnarétt - Umsókn um framkvæmdarleyfi

2311040

HS Veitur sækja um framkvæmdarleyfi vegna lagningar háspennustrengs frá dreifistöð GAR-A í Garði að ferskvatnsdælustöð við Árnarétt. Erindi tekið til afgreiðslu 17. nóvember s.l. með póstsamskiptum ráðsins.
Samþykkt að heimila skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdarleyfi vegna verksins til HS Veitna.

3.Vatnsupptaka í Árnarétt - Umsókn um framkvæmdarleyfi

2311030

HS Veitur sækja um framkvæmdarleyfi vegna borunar tveggja nýrra vatnshola í Árnarétt í Garði. Erindi tekið til afgreiðslu 20. nóvember s.l. með póstsamskiptum ráðsins.
Jákvæð afstaða umsagnaraðila liggur fyrir. Samþykkt að heimila skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdarleyfi vegna verksins til HS Veitna.

4.Strandgata 12 - umsókn um stöðuleyfi

2310085

Eigandi Strandgötu 12 sækir um stöðuleyfi fyrir gám skv. meðfylgjandi umsókn og fylgigögnum.
Samþykkt að veita stöðuleyfi til eins árs.

5.Framkvæmdir í Suðurnesjabæ 2024

2311063

Farið yfir helstu viðhaldverkefni sem fyrirhuguð eru á eignarsjóði sveitarfélagsins 2024
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 16:52.

Getum við bætt efni síðunnar?