Framkvæmda- og skipulagsráð
Dagskrá
Einar Jónsson ráðgjafi frá Verkís var gestur fundarins í máli nr. 1 og 2.
1.Umhverfis- og loftlagsstefna Suðurnesjabæjar
2209067
Ráðgjafi Verkís mætir á fundinn og leggur línurnar varðandi framgang verkefnisins.
Verkefnisáætlun Umhverfis- og loftslagsstefnu Suðurnesjabæjar kynnt.
2.Aðalskipulag Suðurnesjabæjar
2101022
Minnisblað með yfirliti yfir lagfæringar á aðalskipulagi Suðurnesjabæjar lagt fram eftir athugun Skipulagsstofnunar í kjölfar á samþykkt bæjarstjórnar.
Lagt fram til upplýsingar. Ráðið samþykkir lokafrágang Aðalskipulags Suðurnesjabæjar eftir athugun Skipulagsstofnunar.
3.Deiliskipulag - Breyting á B svæði Keflavíkurflugvallar - Nýtt aðkomuhlið
2305081
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi B-svæðis Keflavíkurflugvallar lögð fram til umsagnar.
Ráðið gerir ekki athugasemdir við fyrirhugaða deiliskipulagsbreytingu.
4.Fálkavöllur 7, bygging 10 - umsókn um stöðuleyfi
2305066
Fly Play ehf sækir um stöðuleyfi fyrir flokkunargám endurvinnslu skv. meðfylgjandi umsókn.
Ráðið samþykkir að veita stöðuleyfi til eins árs. Jákvæð umsögn Skipulagsnefndar Keflavíkurflugvallar liggur fyrir.
5.Gerðavegur 14 - bílskýli - fyrirspurn
2305016
Eigandi Gerðavegs 14 leggur fram fyrirspurn hvort heimiluð yðri bygging bílskýlis á lóðinni.
Hafnað. Fyrirhuguð staðsetning er ekki innan lóðar umsækjanda auk þess sem þegar er bílgeymsla fyrir á lóðinni.
6.Sjávarbraut 3, 5 og 11 - umsókn um lóðir
2305057
Byggingarþjónustan Rás ehf. sækir um lóðirnar 3, 5, og 11 undir byggingu iðnaðarhúss.
Samþykkt að úthluta umsækjanda lóðinni Sjávarbraut 11. Áréttað er að umsækjandi kynni sér vel deiliskipulagsskilmála svæðisins.
7.Garðbraut - börn og bílaumferð
2305065
Tillögur að bættu umferðaröryggi við Garðbraut lagðar fram til umræðu.
Tillögurnar miða að því að hámarkshraði verði lækkaður og fyrirkomulagi hraðahindrana verði endurskipulagt. Skipulags- og umhverfissviði falið að vinna að úrbótum í samræmi við tillögur á fundinum. Ráðið samþykkir samhljóða að leggja til við bæjarstjórn að lækka hámarkshraða á Garðbraut, við Gerðaskóla, niður í 30 km á klst.
Fundi slitið - kl. 18:00.