Fræðsluráð
Dagskrá
Áheyrnarfulltrúar: Sigríður Ólöf Sæmundsdóttir aðstoðarleikskólastjóri Sólborg, Hafrún Ægisdóttir leikskólaskennari boðaði forföll, Anna Marta Þorsteinsdóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna, Eva Sveinsdóttir, skólastjóri Gerðaskóla, Kolbrún Ósk Ásgerisdóttir kennari boðaði forföll og Jóhanna Pálsdóttir foreldri úr grunnskóla.
1.Málþroski barna
2211061
Hjördís Hafsteinsdóttir talmeinafræðingur Suðurnesjabæjar kynnti starfið sitt í leik- og grunnskólum bæjarins.
2.Umbótaáætlun ytra mats Gefnarborgar
2201027
Ingibjörg á Gefnarborg forfallaðist og kemur á næsta fund fræðsluráðs í desember.
3.Starfsáætlun Sandgerðisskóla
2110049
Starfsáætlun Sandgerðisskóla fyrir skólaárið 2022-2023 lögð fram. Hún verður aðgengileg á heimasíðu skólans. Skólastjóri kynnti áætlunina.
4.Starfsáætlun Gerðaskóla
2110047
Starfsáætlun fyrir skólaárið 2022-2023 lögð fram og verður aðgengileg á heimasíðu skólans. Skólastjóri kynnti áætlunina.
5.Frístundastyrkir 2022
2201059
Formaður fræðsluráðs kynnti frístundastyrk Suðurnesjabæjar.
6.Umönnunarbætur
1806154
Formaður fræðsluráðs kynnti umönnunarbætur Suðurnesjabæjar.
7.Dagforeldrar
2001112
Formaður fræðsluráðs kynnti niðurgreiðslur fyrir daggæslu í Suðurnesjabæ.
8.Ferðastyrkir námsmanna
2008046
Formaður fræðsluráðs kynnti ferðastyrk til námsmanna.
Fundi slitið - kl. 09:30.