Fara í efni

Bæjarstjórn

20. fundur 08. janúar 2020 kl. 17:30 - 18:25 í Ráðhúsinu í Garði
Nefndarmenn
  • Einar Jón Pálsson forseti
  • Hólmfríður Skarphéðinsdóttir aðalmaður
  • Haraldur Helgason aðalmaður
  • Ólafur Þór Ólafsson fyrsti varaforseti
  • Laufey Erlendsdóttir aðalmaður
  • Fríða Stefánsdóttir aðalmaður
  • Magnús Sigfús Magnússon annar varaforseti
  • Pálmi Steinar Guðmundsson aðalmaður
  • Daði Bergþórsson aðalmaður
  • Magnús Stefánsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Bergný Jóna Sævarsdóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Dagskrá

1.Nám utan lögheimilisssveitarfélags Reglur Suðurnesjabæjar

1907063

Á 39. fundi bæjarráðs voru reglurnar samþykktar samhljóða með breytingu á 1. tl. 4. gr., þar sem við bætist „og sérhæft kennsluúrræði er ekki til staðar í Suðurnesjabæ“.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að staðfesta reglur Suðurnesjabæjar um nám utan lögheimilissveitarfélags.

2.Reglur um flýtingu náms

1909042

Á 39. fundi bæjarráðs voru reglurnar samþykktar og vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að staðfesta reglur um flýtingu náms.

3.Lög og reglugerðir til umsagnar

1902075

Á 39. fundi bæjarráðs var til umfjöllunar tillaga til þingsályktunar um fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2020-2024 og samgönguáætlun 2020-2034. Eftirfarandi umsögn um málið var samþykkt samhljóða í bæjarráði:

- Það eru sameiginlegir hagsmunir allra landsmanna að tvöföldun Reykjanesbrautar sé lokið fljótt og vel alveg frá Hafnarfirði og að Rósaselstorgi í Suðurnesjabæ. Bæjarráð lýsir vonbrigðum með að í drögum að samgönguáætlun sé ekki gert ráð fyrir að ljúka tvöföldun Reykjanesbrautar fyrr en á tímabilinu 2025-2029.
- Byggja þarf upp veginn milli Garðs og Sandgerðis í Suðurnesjabæ, sem ber ekki alla þá umferð sem um hann fer. Þetta verkefni verði í forgangi til að tryggja uppbyggingu og framgang í nýju sveitarfélagi og auka umferðaröryggi. Þá er nauðsynlegt að ráðast í löngu tímabærar viðhaldsframkvæmdir á þjóðvegunum að byggðakjörnum í Suðurnesjabæ. Bæjarráð bendir á að ljúka þarf við síðasta áfangann í endurbyggingu Strandgötu í Sandgerði. Þá er mikilvægt að Flugstöð Leifs Eiríkssonar, sem er innan sveitarfélagsins, sé tengd byggðinni í Sandgerði og Garði með göngu- og hjólreiðastíg.
- Mikilvægt er að heildstætt mat fari fram á sjóvörnum með allri strandlengju Suðurnesjabæjar. Vegna loftslagsbreytinga er áætlað að sjávarstaða muni hækka til framtíðar og því nauðsynlegt að meta ástand sjóvarna og vinna áætlun um úrbætur.
- Bæjarráð leggur áherslu á að hraðað verði rannsóknum á innsiglingu Sandgerðishafnar. Jafnframt að lagt verði mat á ástand Suðurgarðs. Tryggja þarf að Sandgerðishöfn geti staðið undir hlutverki sínu sem önnur af tveimur fiskihöfnum á Suðurnesjum til framtíðar.
- Tryggja þarf að almenningssamgöngur séu raunhæfur kostur fyrir íbúa Suðurnesjabæjar.

Bæjarstjóra og formanni bæjarráðs falið að funda með samgönguyfirvöldum varðandi framangreint.
Til máls tóku: ÓÞÓ og EJP

Afgreiðsla:

Bæjarstjórn tekur undir bókun bæjarráðs. Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.

4.Náttúruminjasafn Íslands - ósk um lán á uppsettum rostungi

1912035

Á 39. fundi bæjarráðs var til umfjöllunar erindi með beiðni frá Náttúruminjasafni Íslands um ósk um lán á uppsettum rostungi í húsnæði Þekkingarseturs Suðurnesja og álit frá Þekkingarsetri Suðurnesja um erindið. Bæjarráð samþykkti að lána Náttúruminjasafni Íslands rostunginn, enda sé það framkvæmanlegt og tryggt að hvorki Suðurnesjabær né Þekkingarsetur Suðurnesja beri kostnað af.
Til máls tók: EJP

Afgreiðsla:

Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.

5.Þróun lands í nágrenni Keflavíkurflugvallar

1806379

Á 39. fundi bæjarráðs lá fyrir undirritað samkomulag um verkefnið, ásamt erindi frá fjármála-og efnahagsráðuneytinu dags. 16.12.2019, þar sem óskað er eftir tilnefningu í stjórn Kadeco.
Bæjarráð lýsir ánægju með að undirritað samkomulag liggi fyrir og tilnefnir Ólaf Þór Ólafsson og Laufey Erlendsdóttur sem fulltrúa Suðurnesjabæjar í stjórn Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar.
Afgreiðsla:
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.

6.Fjölskyldusvið: fræðsluþjónusta

1807110

Á 39. fundi bæjarráðs lá fyrir minnisblað frá sviðsstjóra fjölskyldusviðs, varðandi fræðsludeild og stöðu sérfræðinga. Þar sem ekki hefur tekist að ráða sálfræðing til starfa er lagt til að gerður verði samningur við Sálfræðistofu Suðurnesja um tiltekna þjónustu. Bæjarráð samþykkti að gengið verði frá samningi við Sálfræðistofu Suðurnesja, eins og lagt er til í minnisblaðinu.
Afgreiðsla:

Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.

7.Samskipti skóla og trúfélaga

1911073

Á 13. fundi fræðsluráðs voru samþykkt drög að reglum um samskipti skóla og trúfélaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Afgreiðsla:

Reglur um samskipti skóla og trúfélaga samþykktar samhljóða.

8.Göngustígur milli Garðs og Sandgerðis

1809097

Á 39. fundi bæjarráðs lágu fyrir drög að samningi við Vegagerðina um fjármögnun framkvæmda. Bæjarráð samþykkti að fela bæjarstjóra að undirrita samninginn við Vegagerðina fyrir hönd Suðurnesjabæjar.
Afgreiðsla:

Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.

9.Bæjarráð - 38

1912003F

Fundur dags. 11.12.2019.
Afgreiðsla:

Fundargerðin lögð fram.

10.Bæjarráð - 39

1912012F

Fundur dags. 18.12.2019.
Til máls tók: ÓÞÓ

Afgreiðsla:

Fundargerðin lögð fram.

11.Fræðsluráð - 13

1912006F

Fundur dags. 17.12.2019.
Afgreiðsla:

Fundargerðin lögð fram.

12.Íþrótta- og tómstundaráð - 7

1912007F

Fundur dags. 17.12.2019.
Til máls tóku: FS og MS

Afgreiðsla:

Fundargerðin lögð fram.

13.Fjölskyldu- og velferðarráð fundargerðir 2019

1901110

16. fundur dags. 19.12.2019.
Afgreiðsla:

Fundargerðin lögð fram.

14.Samband íslenskra sveitarfélaga fundargerðir 2019

1901109

a) 876. fundur stjórnar dags. 29.11.2019.
b) 877. fundur stjórnar dags. 13.12.2019.
Afgreiðsla:

Fundargerðirnar lagðar fram.

15.Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum fundargerðir 2019

1902057

751. fundur stjórnar dags. 18.12.2019.
Til máls tók: EJP

Afgreiðsla:

Fundargerðin lögð fram.

16.Heilbrigðisnefnd Suðurnesja fundargerðir 2019

1902013

280. fundur dags. 21.11.2019.
Afgreiðsla:

Fundargerðin lögð fram.

17.Þekkingarsetur Suðurnesja fundargerðir 2019

1902094

Fundur 32. fundar stjórnar dags. 28.11.2019.
Til máls tók: FS

Afgreiðsla:

Fundargerðin lögð fram.

18.Svæðisskipulagsnefnd Suðurnesja - fundargerðir 2019

1902081

20. fundur dags. 23.09.2019.
Afgreiðsla:

Fundargerðin lögð fram.

19.Heklan fundargerðir 2019

1902058

75. fundur dags. 10.12.2019.
Til máls tóku: EJP, ÓÞÓ, MS, HH, MSM og HS

Afgreiðsla:

Fundargerðin lögð fram.

Fundi slitið - kl. 18:25.

Getum við bætt efni síðunnar?