Fara í efni

Bæjarstjórn

62. fundur 01. nóvember 2023 kl. 17:30 - 19:04 í Ráðhúsinu í Garði
Nefndarmenn
  • Einar Jón Pálsson forseti
  • Magnús Sigfús Magnússon aðalmaður
  • Oddný Kristrún Ásgeirsdóttir aðalmaður
  • Anton Kristinn Guðmundsson fyrsti varaforseti
  • Úrsúla María Guðjónsdóttir aðalmaður
  • Jónína Magnúsdóttir annar varaforseti
  • Laufey Erlendsdóttir aðalmaður
  • Sigursveinn Bjarni Jónsson aðalmaður
  • Elín Frímannsdóttir aðalmaður
  • Magnús Stefánsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Árni Gísli Árnason sviðsstjóri stjórnsýslu-og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun 2024-2027

2303087

Fyrri umræða.
Tóku til máls: MS og EJP.

Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að álagningarhlutfall útsvars verði það sama og á árinu 2023, eða 14,74%.
Samþykkt samhljóða að vísa fjárhagsáætlun til umfjöllunar í bæjarráði og síðari umræðu í bæjarstjórn.

2.Fjárhagsáætlun 2023 - viðaukar

2304031

Á 129. fundi bæjarráðs dags. 11.10.2023 voru viðaukar við fjárhagsáætlun 2023 nr. 3-5 samþykktir samhljóða og vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar.
Tóku til máls: EF, MS, AKG og EJP.

Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að staðfesta viðauka 3-5.

3.Deiliskipulag Garðskaga - Tillaga að deiliskipulagsbreytingu

1809067

Á 48. fundi framkvæmda-og skipulagsráðs dags. 25.10.2023 voru samþykktar tillögur um viðbrögð við ábendingum í afgreiðslubréfi Skipulagsstofnunar dags. 24.08.2023. Framkvæmda-og skipulagsráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu erindisins í samræmi við afgreiðslu framkvæmda-og skipulagsráðs.
Tóku til máls: LE, EJP og AKG.

Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að staðfesta afgreiðslu framkvæmda-og skipulagsráðs á erindi Skipulagsstofnunar samkvæmt afgreiðslubréf dags. 24.08.2023.

4.Gauksstaðir - Fyrirspurn vegna endurbyggingar á mhl. 03 og breytta staðsetningu

2307038

Á 48. fundi framkvæmda-og skipulagsráðs dags. 25.10.2023 var samþykkt að erindið samræmist aðalskipulagi og innkomnar athugasemdir gefi ekki tilefni til synjunar. Erindið er samþykkt.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að staðfesta afgreiðslu framkvæmda-og skipulagsráðs.

5.Sjávarbraut 11 Ósk um óverulega deiliskipulagsbreytingu

2307042

Á 48. fundi framkvæmda-og skipulagsráðs dags. 25.10.2023 var ósk um óverulega deiliskipulagsbreytingu Sjávarbraut 11 samþykkt skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að staðfesta afgreiðslu framkvæmda-og skipulagsráðs, með tilvísun í 3.mgr. 44.gr. skipulagslaga.

6.Samgönguáætlun - sjóvarnir

2210020

Á 129. fundi bæjarráðs dags. 11.10.2023 lá fyrir minnisblað GB stjórnsýsluráðgjafar um lagaleg álitaefni um skyldur sveitarfélagsins vegna sjóvarna og óskir landeiganda um atbeina sveitarfélagsins til að verja land og mannvirki. Bæjarráð samþykkti samhljóða að svarbréf til landeiganda verði eins og lagt er til í minnisblaðinu.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að staðfesta afgreiðslu bæjarráðs.

7.Bæjarráð - 129

2310006F

Fundur dags. 11.10.2023.
Tóku til máls: JM, MS, EJP, AKG, EF og LE.

Afgreiðsla:
Lagt fram.

8.Bæjarráð - 130

2310018F

Fundur dags. 25.10.2023.
Tók til máls: AKG.

Afgreiðsla:
Lagt fram.

9.Ferða-, safna- og menningarráð - 23

2310004F

Fundur dags. 05.10.2023.
Tók til máls: SBJ, JM og EJP.

Afgreiðsla:
Lagt fram.

10.Fræðsluráð - 42

2310013F

Fundur dags. 19.10.2023.
Tóku til máls: JM, ÚMG, LE, EJP, AKG og MSM.

Afgreiðsla:
Lagt fram.

11.Framkvæmda- og skipulagsráð - 48

2310014F

Fundur dags. 25.10.2023.
Tóku til máls: JM, SBJ, AKG, EF, EJP, LE og EJP.


Afgreiðsla:
Lagt fram.

12.Samband íslenskra sveitarfélaga-fundargerðir 2023

2301078

a) 934. fundur stjórnar dags. 29.09.2023.

b) 935. fundur stjórnar dags. 16.10.2023.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

13.Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum fundargerðir 2023

2301036

794. fundur stjórnar dags. 11.10.2023.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

14.Heilbrigðisnefnd Suðurnesja - fundargerðir 2023

2301091

a) 304. fundur dags. 09.10.2023.

b) 305. fundur dags. 23.10.2023.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

15.Kalka sorpeyðingarstöð - fundargerðir 2023

2301048

551. fundur stjórnar dags. 17.10.2023.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

16.Brunavarnir Suðurnesja fundargerðir 2023

2301064

76. fundur stjórnar dags. 19.10.2023.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 19:04.

Getum við bætt efni síðunnar?