Fara í efni

Bæjarráð

46. fundur 27. mars 2020 kl. 13:00 - 16:30 í Ráðhúsinu í Sandgerði
Nefndarmenn
  • Ólafur Þór Ólafsson formaður
  • Hólmfríður Skarphéðinsdóttir varaformaður
  • Pálmi Steinar Guðmundsson varamaður
  • Daði Bergþórsson áheyrnarfulltrúi
  • Magnús Stefánsson bæjarstjóri
  • Bergný Jóna Sævarsdóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Bergný Jóna Sævarsdóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Dagskrá
Aukafundur bæjarráðs

1.Sumarstörf 2020

1912059

Minnisblað frá deildarstjóra frístundaþjónustu og verkefnisstjóra á skipulags- og umhverfissviði.
Afgreiðsla:

Mál í vinnslu.

2.Sandgerðishöfn starfshópur um rekstur

1912013

a) Skilabréf starfahóps.
b) Lokaskýrsla Deloitte.
Afgreiðsla:

Skýrslunni vísað til bæjarstjórnar og verði send fulltrúum í hafnarráði og hafnarstjóra til kynningar.

3.Fjármál og rekstur í ljósi Covid 19

2003075

Minnisblað frá bæjarstjóra og sviðsstjóra stjórnsýslusviðs.
Afgreiðsla:

Vegna áhrifa heimsfaraldurs af völdum COVID-19 hefur margvísleg þjónusta sveitarfélagsins tekið breytingum frá því sem verið hefur. Aðgerðastjórn hefur unnið eftir og tekið ákvarðanir á grundvelli leiðbeininga og tilmæla frá Embætti landlæknis, sóttvarnalækni og Almannavörnum hverju sinni. Þá hefur samkomubann og afleiðingar heimsfaraldurs haft mikil áhrif á mörg atvinnufyrirtæki, sérstaklega í ferðaþjónustu, þar sem tekjur fyrirtækjanna hafa nánast þurrkast upp. Af þessu leiðir að sveitarfélagið mæti annars vegar þjónustuþegum í skólum og barnagæslu og hins vegar atvinnufyrirtækjum sem lenda í greiðsluvanda. Vegna þessa samþykkir bæjarráð Suðurnesjabæjar eftirfarandi aðgerðir:

Þjónustugjöld og skólamáltíðir:
Eftir að samkomubann tók gildi frá og með 16. mars 2020 hefur starfsemi leikskóla, grunnskóla, skólasels og dagforeldra verið skert. Aðgerðastjórn Suðurnesjabæjar hefur gefið út breytingar á innheimtu þjónustugjalda vegna þess og gildir það meðan samkomubann er í gildi og starfsemin er skert.

Leikskólagjöld og skólasel:
Afslættir af gjöldum verði með eftirfarandi hætti frá og með 16. mars 2020.:
- Foreldrar sem hafa tekið ákvörðun um að nýta ekki dvalartíma sinn meðan samgöngubann varir fá 100% afslátt af gjöldum.
- Foreldrar sem nýta þjónustu greiða einungis fyrir þá þjónustu sem nýtt er.
Endurútreikningur gjalda mun taka tíma en áætlað er að hægt verði að leiðrétta í apríl.

Dagforeldrar:
Greiðslur til dagforeldra verði óskertar ef dregið verður úr vistun barna.

Skólamáltíðir
- Allir nemendur í grunnskólum Suðurnesjabæjar fái einfalda máltíð þá daga sem nemendur eru í skóla meðan skólahald stendur á tímum samkomubanns og skertra skóladaga sökum þess.
- Engir reikningar vegna skólamáltíða verða sendir út fyrir apríl mánuð og meðan takmarkað skólahald stendur yfir.
- Greiðslur foreldra og forráðamanna vegna áskrifta að skólamat fyrir mars verða endurreiknaðar og miðast við 16. mars 2020. Nánari útfærsla á endurútreikningum verður kynnt nánar og þegar hún liggur fyrir.
Starfsmenn Suðurnesjabæjar munu sjá um endurgreiðslu og því þurfa foreldra eða forráðamenn ekki að hafa samband við Skólamat til að segja upp áskriftum.

Íþróttamiðstöðvar:
Þar sem loka hefur þurft aðgangi að sundlaugum og íþróttamiðstöðvum Suðurnesjabæjar vegna COVID-19 verða tímabundin aðgangskort framlengd um þann tíma sem lokunin stendur yfir.

Fasteignagjöld lögaðila:
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur hvatt sveitarfélög til þess að koma til móts við atvinnufyrirtæki sem lenda í rekstrarerfiðleikum vegna afleiðinga af Covid-19 faraldrinum, varðandi m.a. innheimtu fasteignagjalda.

Í 4.gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga er kveðið á um gjalddaga og eindaga fasteignagjalda sveitarfélaga. Sveitarfélögum ber að ákveða gjalddaga fasteignagjalda í upphafi hvers árs og er eindagi samkvæmt lögunum 30 dögum eftir gjalddaga.

Varðandi innheimtu fasteignagjalda gildir eftirfarandi:

Innheimta fasteignagjalda lögaðila:

Lögaðilar sem þess óska og eiga í rekstrarerfiðleikum vegna tekjuskerðingar af völdum Covid-19 faraldurs, geta fengið frest á greiðslu fasteignagjalda án kostnaðar. Um er að ræða fasteignagjöld á gjalddaga í mars og apríl 2020 og mögulegur greiðslufrestur er til 30. júní 2020.

Framangreindar ráðstafanir koma til endurskoðunar ef þörf krefur og eftir tilmælum almannavarna hverju sinni.

4.Tillaga til þingsályktunar um sérstakt tímabundið fjárfestingarátak ríkisins

2003088

Tillaga fjármála- og efnahagsráðherra um sérstakt tímabundið fjárfestingarátak til kynningar.
Afgreiðsla:

Lagt fram.

5.Ferskir vindar - Alþjóðleg listahátíð

1810021

Minnisblað frá formanni bæjarráðs.
Afgreiðsla:

Bæjarráð þakkar fyrir framlagða skýrslu og minnisblaði vísað til gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2021.

6.Tjarnargata 4 Skýlið

1806571

Minnisblað lagt fram.
Afgreiðsla:

Bæjarráð samþykkir að samningur við knattspyrnudeild Reynis vegna afnota af Tjarnargötu 4 verði framlengdur úr árið 2020, en þó með þeim breytingum að leigutaki sjái um að greiða rafmagn og hita af húsinu, internet og síma frá 01.04.2020 og til loka samningsins. Þá er lagt til að á árinu 2020 verði tekið til skoðunar með hvaða hætti megi nýta húsnæðið að Tjarnargötu 4 til framtíðar.

7.Umsókn um rekstrarleyfi til veitingu veitinga í flokki II - Gólfklúbbur Suðurnesja

2002039

Umsögn um rekstarleyfi.
Afgreiðsla:

Bæjarráð telur rétt að fara eftir gildandi lögreglusamþykkt um afgreiðslutíma áfengis eins og kemur fram í umsögn lögreglustjóra. Að öðru leyti er ekki gerð athugasemd við umsóknina.

8.Tjón á íbúðarhúsnæði Víðis við Gerðaveg

2003089

Minnisblað lagt fram.
Afgreiðsla:

Mál í vinnslu.

Fundi slitið - kl. 16:30.

Getum við bætt efni síðunnar?