Fara í efni

Bæjarráð

139. fundur 26. mars 2024 kl. 15:30 - 18:20 í Ráðhúsinu í Garði
Nefndarmenn
  • Anton Kristinn Guðmundsson formaður
  • Magnús Sigfús Magnússon aðalmaður
  • Jónína Magnúsdóttir aðalmaður
  • Sigursveinn Bjarni Jónsson áheyrnarfulltrúi
  • Magnús Stefánsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Árni Gísli Árnason sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Ársreikningur Suðurnesjabæjar 2023

2403091

Lögð fram drög að ársreikningi Suðurnesjabæjar fyrir árið 2023. Kjartan Ingvarsson sérfræðingur fjármála sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Afgreiðsla:

Samþykkt samhljóða að vísa ársreikningi til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

2.Viðverustefna Suðurnesjabæjar

2403096

Tillaga um viðverustefnu vegna starfsfólks Suðurnesjabæjar. Haukur Arnarson mannauðsstjóri sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Afgreiðsla:

Viðverustefna og verklagsregla um fjarvinnu samþykktar samhljóða.

3.Leikskóli við Byggðaveg - rekstur

2306034

Minnisblað frá sviðsstjóra fjölskyldusviðs vegna viðauka #4 við samning við Skóla ehf um rekstur leikskólans Grænuborg.
Afgreiðsla:

Viðauki við samning við Skóla ehf samþykktur samhljóða.

4.Íþróttamannvirki

1901070

Skýrslur og gögn varðandi tjón á gólfi íþróttasalar í Íþróttamiðstöðinni í Garði. Einnig framhald á umfjöllun um gervigrasvöll frá 138. fundi bæjarráðs.
Afgreiðsla:

Skýrsla um tjón á gólfi íþróttasalar lögð fram.

Bæjarráð samþykkir samhljóða að samráðsteymi um uppbyggingu-og viðhaldsáætlun íþróttamannvirkja, sem samþykkt var að skipa á 67. fundi bæjarstjórnar, verði falið að vinna tillögu um staðsetningu gervigrasvallar og skili tillögu til bæjarráðs fyrir 20. maí 2024. Bæjarráð leggur áherslu á að knattspyrnufélögin taki fullan þátt og ábyrgð við vinnu að tillögu um staðsetningu vallarins. Jafnframt vinni samráðsteymið að framtíðarsýn um uppbyggingu íþróttamannvirkja og í samstarfi við íþróttafélögin að framtíðarsýn um starfsemi þeirra.

5.Erindi frá Jóni Norðfjörð

2403084

Erindi frá Jóni Norðfjörð til bæjarstjórnar og bæjarstjóra dags. 20.03.2024.
Afgreiðsla:

Samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra að svara erindinu eins og kostur er.

6.Erindi frá fjáreigendum í syðra beitarhólfi

2203044

Erindi dags. 04.03.2024 varðandi skerðingu á beitarlandi vegna íbúðabyggðar í Skerjahverfi.
Afgreiðsla:

Lagt fram, málinu frestað til næsta fundar bæjarráðs.

7.Aldraðir þjónusta og áherslur í nærumhvefi

2402088

Kynning á vinnu á síðasta kjörtímabili um þjónustu við aldraða í Suðurnesjabæ.
Afgreiðsla:

Bæjarráð óskar eftir samantekt um þjónustu og þjónustuþörf við aldraða í Suðurnesjabæ.

8.Sveitarfélagið Vogar - sameiningarmál

2309116

Fundargerð 2. fundar verkefnishóps um könnunarviðræður dags. 27.02.2024.
Afgreiðsla:

Lagt fram.

9.Bláa Lónið aðalfundarboð

2303015

Fundarboð aðalfundar Bláa Lónsins hf. dags. 05.04.2024.

Fundi slitið - kl. 18:20.

Getum við bætt efni síðunnar?