Fara í efni

Bæjarráð

134. fundur 17. janúar 2024 kl. 15:30 - 17:26 í Ráðhúsinu í Garði
Nefndarmenn
  • Anton Kristinn Guðmundsson formaður
  • Magnús Sigfús Magnússon aðalmaður
  • Jónína Magnúsdóttir aðalmaður
  • Sigursveinn Bjarni Jónsson áheyrnarfulltrúi
  • Magnús Stefánsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Árni Gísli Árnason sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
.
Suðurnesjabær sendir hlýjar kveðjur til íbúa Grindavíkur. Það er erfitt fyrir alla íslendinga að verða vitni að þeim miklu náttúruhamförum sem orðið hafa í og við Grindavík. Öflugt og samheldið samfélag í fyrirmyndar sveitarfélagi hefur orðið fyrir miklum áföllum sem setur íbúa Grindavíkur í erfiða stöðu. Íslendingar eru þekktir fyrir öfluga samstöðu þegar áföll hafa dunið yfir og nú mun reyna á samstöðuna og viðbrögð sem aldrei fyrr. Hugur okkar er hjá íbúum Grindavíkur og við heitum því að standa með og veita grindvíkingum alla þá aðstoð sem möguleg er við þessar erfiðu aðstæður. Suðurnesjabær þakkar almannavörnum og öllum viðbragðsaðilum fyrir þeirra ómetanlega framlag við krefjandi aðstæður og er þeim óskað velfarnaðar í þeirra störfum í þágu samfélagsins.

1.Íþróttamannvirki

1901070

Minnisblað frá deildarstjóra umhverfismála varðandi uppbyggingu á gervigras velli, ásamt samanburði á frumjarðkönnun íþróttavallanna í Garði og Sandgerði með kostnaðarmati og samantekt um samanburði á valkostum. Einar Friðrik Brynjarsson deildarstjóri umhverfismála sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Afgreiðsla:

Lagt fram, bæjarráð óskar eftir því að fá formenn íþróttafélagana á fund til frekari umfjöllunnar um málið.

2.Kostnaður og tekjur í úrgangsstjórnun - þátttaka í verkefni

2401011

Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um þátttöku Suðurnesjabæjar í kostnaðarmatsverkefni vegna úrgangsstjórnunar sveitarfélaga. Einar Friðrik Brynjarsson deildarstjóri umhverfismála sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Afgreiðsla:

Samþykkt samhljóða að Suðurnesjabær taki þátt í verkefninu.

3.Mennta- og barnamálaráðuneytið - samningur um fylgdarlaus börn

2401007

Samstarfssamningur milli mennta-og barnamálaráðuneytisins og Suðurnesjabæjar um málefni fylgdarlausra barna.
Afgreiðsla:

Lagt fram, bæjarráð samþykkir að staðfesta samninginn og lýsir yfir ánægju sinni með hann.

4.Stýrihópur um sértækt búsetuúrræði fyrir fatlað fólk

2401023

Minnisblað frá sviðsstjóra velferðarsviðs með eftirfarandi tillögu frá fjölskyldu-og velferðarráði: Þess er farið á leit við bæjarstjórn að stofnaður verði stýrihópur sem rýnir þörf fyrir þjónustu og sértæka búsetu fyrir fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir skv. lögum nr. 38/2018 og leggi fram tillögu um uppbyggingu á þjónustu í sveitarfélögunum.
Afgreiðsla:

Samþykkt samhljóða að skipaður verði stýrihópur um verkefnið, samkvæmt tillögu fjölskyldu-og velferðarráðs. Bæjarstjóra falið að skipa í stýrihópinn skv. umræðu á bæjarráðsfundi.

5.Sveitarfélagið Vogar - sameiningarmál-ósk um fund

2309116

Erindi frá Sveitarfélaginu Vogum, boð um samstarf um öflun upplýsinga til að kanna grundvöll viðræðna um sameiningu sveitarfélaga.
Afgreiðsla:

Samþykkt samhljóða að Suðurnesjabær taki þátt í samstarfi um öflun upplýsinga og bæjarstjóra falið að fylgja málinu eftir.

6.Fjárhagsáætlun 2023 - viðaukar

2304031

Viðauki 7. vegna tölvukaupa.
Afgreiðsla:

Viðauki 7 samþykktur samhljóða og vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar.

7.Jöfnunarsjóður sveitarfélaga-endurskoðun 2023

2303098

Erindi frá innviðaráðherra dags. 09.01.2024 varðandi frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Í erindinu kemur m.a. fram að heildarendurskoðun á lagaumgjörð og úthlutunarreglum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verði frestað vegna málaferla Reykjavíkurborgar gegn íslenska ríkinu vegna Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Afgreiðsla:

Lagt fram.

8.Starfsnámsskólar

2401019

Bókun stjórnar SSS dags. 10.01.2024 um málefni framhaldsskóla á Suðurnesjum, viðbygging verkmenntaaðstöðu við Fjölbrautarskóla Suðurnesja.
Afgreiðsla:

Bæjarráð tekur undir bókun stjórnar SSS um að vinna þurfi frekari greiningu á kostnaði og öðrum þáttum áður en afstaða er tekin til málsins.

9.XXXIX. landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga

2401017

Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga með boðun á Landsþing sveitarfélaga þann 14. mars 2024.
Afgreiðsla:

Lagt fram.

10.Fundarboð - hluthafafundur Keilis miðstöðvar fræða, vísinda og atvinnulífs

2401030

Boð á hluthafafund í Keili 24.janúar 2024.
Afgreiðsla:

Samþykkt að bæjarstjóri sæki hluthafafund Keilis í umboði Suðurnesjabæjar.

Fundi slitið - kl. 17:26.

Getum við bætt efni síðunnar?