Fara í efni

Bæjarráð

131. fundur 08. nóvember 2023 kl. 15:30 - 17:00 í Ráðhúsinu í Garði
Nefndarmenn
  • Anton Kristinn Guðmundsson formaður
  • Magnús Sigfús Magnússon aðalmaður
  • Laufey Erlendsdóttir varamaður
  • Sigursveinn Bjarni Jónsson áheyrnarfulltrúi
  • Magnús Stefánsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Árni Gísli Árnason sviðsstjóri stjórnsýslu-og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun 2023 - viðaukar

2304031

Viðauki nr. 6 vegna hlutdeildar Suðurnesjabæjar í samstarfsverkefnum á Suðurnesjum, sbr. 20. gr. reglugerðar nr. 1212/2015.
Afgreiðsla:
Viðauki 6 samþykktur samhljóða og vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

2.Starfsmannamál

2307056

Minnisblað frá bæjarstjóra og mannauðsstjóra varðandi starfsmannamál og skipurit. Haukur Þór Arnarson mannauðsstjóri sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Afgreiðsla:
Tillögur í minnisblaði samþykktar samhljóða.

3.Umhverfismiðstöð Suðurnesjabæjar-Starfsmannamál, rekstur o.fl.

2104067

Minnisblað frá deildarstjóra umhverfismála varðandi starfsmannahald og skipulag umhverfismiðstöðvar. Haukur Þór Arnarson mannauðsstjóri sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

4.Atvinnumál og málefni hafnarráðs

2303026

Minnisblað frá bæjarstjóra sbr. samþykkt bæjarráðs dags. 08.03.2023 um kosti og galla við að leggja niður hafnarráð og færa málefni þess undir bæjarráð, sem og um kosti þess að fela hafnarráði aukin verkefni á sviði atvinnumála.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

5.Aðgerðastjórn - náttúruvá

2311009

Fundargerð aðgerðastjórnar Suðurnesjabæjar dags. 07.11.2023.
Afgreiðsla:
Lagt fram bréf frá HS Veitum, HS Orku og bæjarstjórum Suðurnesjabæjar, Reykjanesbæjar og Grindavíkurbæjar til viðkomandi ráðherra með ósk um stuðning við að koma upp öruggu aðgengi að neysluvatni í náttúruhamfaraástandi. Einnig ósk um stuðning við rannsóknir á lághita á Reykjanesi.
Að öðru leyti er fundargerð lögð fram.

Fundi slitið - kl. 17:00.

Getum við bætt efni síðunnar?