Fara í efni

Bæjarráð

120. fundur 24. maí 2023 kl. 14:30 - 17:00 í Ráðhúsinu í Garði
Nefndarmenn
  • Anton Kristinn Guðmundsson formaður
  • Magnús Sigfús Magnússon aðalmaður
  • Elín Frímannsdóttir varamaður
  • Laufey Erlendsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Magnús Stefánsson bæjarstjóri
  • Bergný Jóna Sævarsdóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Bergný Jóna Sævarsdóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Dagskrá

1.Stuðningsþjónusta almennt

2302021

Minnisblað frá sviðsstjóra fjölskyldusviðs og deildarstjóra félagsþjónustu varðandi kostnað við barnaverndarþjónustu.
Afgreiðsla:

Samþykkt samhljóða að verða við erindi í minnisblaðinu. Bæjarstjóra er falið að leggja fram tillögu að viðauka vegna málsins.

2.Greining á möguleikum varðandi fyrirkomulag og starfsemi leikskóla - trúnaðarmál

2304036

Afgreiðsla:

Lagt fram og afgreiðsla skráð sem ítarbókun.

3.Leikskóli við Byggðaveg-Framkvæmdir

2109077

Minnisblað frá sviðsstjóra skipulags-og umhverfissviðs.
Afgreiðsla:

Samþykkt samhljóða að lokið verði að fullu við uppbyggingu á nýjum leikskóla við Byggðaveg þannig að leikskólinn rúmi sex leikskóladeildir. Bæjarstjóra falið að leggja fyrir bæjarráð tillögu um útfærslu og viðauka við fjárhagsáætlun til að mæta þeim aukna kostnaði sem þessari breytingu fylgir.

4.BSRB - Verkfallsaðgerðir maí 2023

2305079

Minnisblað mannauðsstjóra til upplýsingar um stöðu verkfallsaðgerða BSRB hjá Suðurnesjabæ.
Afgreiðsla:

Lagt fram.

5.Umsókn um rekstrarleyfi til veitingu veitinga í flokki II - Sbarro Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

2303101

Erindi frá sýslumanninum á Suðurnesjum dags. 24.03.2023, ósk um umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi til veitinga í flokki II í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Afgreiðsla:

Bæjarráð gerir ekki athugasemd um að umbeðið leyfi verði veitt enda er afgreiðslutími og
staðsetning þess staðar sem umsóknin lýtur að innan þeirra marka sem reglur og skipulag
sveitarfélagsins segja til um.

6.Viljayfirlýsing - Borgað þegar hent er innleiðing við heimili

2305055

Viljayfirlýsing um þátttöku Suðurnesjabæjar í verkefninu Borgað þegar hent er - innleiðing við heimili.
Afgreiðsla:

Samþykkt samhljóða að staðfesta viljayfirlýsinguna.

7.Þjónustusamningur um aðkeypta þjónustu af fræðsluþjónustu Suðurnesjabæjar

2304015

Drög að endurnýjuðum samningi við Sveitarfélagið Voga um þjónustu fræðsluþjónustu Suðurnesjabæjar, gildistími til 30.06.2023.
Afgreiðsla:

Samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra að undirrita samninginn fyrir hönd Suðurnesjabæjar.

8.Miðgarður útleiga-erindi frá starfsfólki Gerðaskóla

2305071

Undirskriftalisti starfsfólks Gerðaskóla dags. 03.05.2023, þar sem farið er fram á að Miðgarður, salur Gerðaskóla verði leigður endurgjaldslaust til starfsfólks Gerðaskóla, eins og á við um sal Sandgerðisskóla.
Afgreiðsla:

Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu og vekur athygli á því að Miðgarður er í gjaldskrá sveitarfélagsins og er ætlaður til útleigu fyrir almenning og útbúinn með það að í huga.



9.Bæjarstjórn og bæjarráð - fundaáætlun

2205102

Tillaga um fundaáætlun bæjarráðs júní - ágúst 2023.
Afgreiðsla:

Fundaáætlun samþykkt samhljóða.

Fundi slitið - kl. 17:00.

Getum við bætt efni síðunnar?