Fara í efni

Bæjarráð

111. fundur 11. janúar 2023 kl. 14:30 - 16:05 í Ráðhúsinu í Garði
Nefndarmenn
  • Anton Kristinn Guðmundsson formaður
  • Magnús Sigfús Magnússon aðalmaður
  • Sigursveinn Bjarni Jónsson aðalmaður
  • Laufey Erlendsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Bergný Jóna Sævarsdóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Bergný Jóna Sævarsdóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs og staðgengill bæjarstjóra
Dagskrá

1.Þátttaka barna í íþróttum - frístundabíll

2209040

Minnisblað frá deildarstjóra frístundaþjónustu.
Rut Sigurðardóttir deildarstjóri frístundaþjónustu sat fundinn undir þessum dagskrárlið.

Afgreiðsla:

Lagt fram. Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram.

2.Sýslumaðurinn á Suðurnesjum umsókn um tækifærisleyfi - ósk um umsögn

1902008

Erindi frá sýslumanni, ósk um umsögn vegna umsóknar frá Knattspyrnufélaginu Víði um tækifærisleyfi - tímabundið áfengisleyfi vegna Þorrablóts 21. janúar 2023 í íþróttamiðstöðinni í Garði. Umsögn sviðsstjóra skipulags-og umhverfissviðs liggur fyrir.
Afgreiðsla:

Með vísan til 10. gr. laga nr. 85/2007 samþykkir bæjarráð eftirfarandi:

1.a
Starfsemin sem umsókn varðar er í samræmi við byggingarleyfi og skipulagsskilmál.

1.b
Lokaúttekt hefur farið fram á húsnæðinu.

1.c
Afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að er innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segir til um.

3.Sólborg - Úttekt á loftgæðum og innivist

2209054

Minnisblað frá sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs í kjölfar úttektar á loftgæðum og innivist leikskólans Sólborgar.
Afgreiðsla:

Lagt fram. Bæjarráð óskar eftir því að kostnaðargreining vegna verkefnisins verði lögð fram á næsta fundi.

4.Leikskóli við Byggðaveg-Framkvæmdir

2109077

Minnisblað frá sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs.
Afgreiðsla:

Lagt fram. Í minnisblaðinu kemur m.a. fram að verkinu miðar vel og verklok eru áætluð í desember 2023.

5.Suðurnesjabær - Samþykkt um gatnagerðargjöld

2211128

Drög að samþykkt um gatnagerðargjöld.
Afgreiðsla:

Samþykkt um gatnagerðargjald, stofngjald vatns- og fráveitu, framkvæmda-, stöðu- og byggingarleyfisgjöld, afgreiðslu-og þjónustugjöld í Suðurnesjabæ samþykkt samhljóða.

6.Bílastæðasjóður Suðurnesjabæjar - fundargerðir

1911045

5. fundur stjórnar dags. 28.12.2022.
Afgreiðsla:

Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 16:05.

Getum við bætt efni síðunnar?