Fara í efni

Aðgerðastjórn

46. fundur 12. nóvember 2021 kl. 13:30 - 14:00 Ráðhús Garður
Nefndarmenn
  • Magnús Stefánsson bæjarstjóri
  • Bergný Jóna Sævarsdóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
  • Guðrún B Sigurðardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs.
Fundargerð ritaði: Bergný Jóna Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs

Farið yfir reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar covid-19 sem gefnar voru út fyrr í
dag og gilda frá næsta miðnætti og til og með 8. desember 2021.
Eftirfarandi ráðstafanir snerta starfsemi Suðurnesjabæjar:


Almennt:
• Almennar fjöldatakmarkanir miðast við hámark 50 manns, hvort sem er utandyra, í
opinberum rýmum eða einkarýmum. Börn fædd 2016 og síðar teljast ekki með.
• Almennt gildir 1 metra fjarlægðarmörk milli einstaklinga, ef ekki er hægt að virða það gildir
grímuskylda. Leikskólabörn og nemendur í 1. – 4. bekkjum grunnskóla eru undanþegin
þessari reglu.
• Grímuskylda er almenn, ef ekki er hægt að virða 1 metra fjarlægðarreglu.
• Heimilt er að halda skólaskemmtanir fyrir allt að 500 manns í hverju sóttvarnahólfi. Skylda er
um neikvæða niðurstöðu hraðprófs vegna skólaskemmtana í grunnskólum en undanþága er
frá 1 metra reglu og grímuskyldu.
Varðandi aðra fjölmenna viðburði, svo sem tónleika eða skemmtanir, er heimilt að halda slíka
viðburði fyrir 500 manns í hverju sóttvarnahólfi ef allir gestir fæddir 2015 og fyrr framvísa
neikvæðri niðurstöðu úr hraðprófi sem má ekki vera eldra en 48 klst. Ef ekki er hægt að
uppfylla 1 metra reglu skulu gestir bera grímu, að undanskildum börnum fæddum 2006 eða
síðar. Heimilt er að víkja frá 1 metra reglunni þegar gestir sitja en þá ber að nota grímu. Skylt
er að skrá gesti í föstum sætum með nafni, kennitölu og símanúmeri. Óheimilt er að selja
veitingar í hléi.
• Íþróttamiðstöðvar mega taka á móti 75% af leyfilegum hámarksfjölda gesta samkvæmt
starfsleyfi. Börn fædd 2016 eða síðar teljast ekki með.


Skólastarf:
• Almenn regla um 50 manna fjöldatakmörk gilda í skólum, nema að börn fædd 2016 og síðar
eru undanskilin. Börn fædd 2006 og síðar eru undanþegin grímuskyldu.
• Starfsfólki í leikskólum er ekki skylt að nota grímu í samskiptum við leikskólabörn.
• Kennurum í grunnskólum er heimilt að taka niður grímu eftir að sest er niður inni í
skólastofum.
• Blöndun milli hópa í skólastarfi er heimil á öllum skólastigum.
Stofnanir Suðurnesjabæjar, svo sem íþróttamiðstöðvar munu auglýsa þær ráðstafanir sem gilda í
þeim stofnunum.
Vegna þeirra sóttvarnaráðstafana sem nú er gripið til mun Suðurnesjabær endurskoða þau áform
sem uppi eru um viðburði á vegum sveitarfélagsins á næstu vikum. Upplýsingum um það verður
komið á framfæri eftir því sem við á.
Aðgerðastjórn leggur ríka áherslu á að allir sinni persónulegum smitvörnum og að farið sé eftir
þeim leiðbeiningum og sóttvarnareglum sem eru í gildi hverju sinni.
Fundi lauk kl. 14:00.

Getum við bætt efni síðunnar?