Fara í efni

Aðgerðastjórn

23. fundur 30. október 2020 kl. 16:00 - 17:00 Ráðhúsið Garði
Nefndarmenn
  • ​Magnús Stefánsson bæjarstjóri
  • Bergný Jóna Sævarsdóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
  • Guðrún B Sigurðardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Jón Ben Einarsson sviðsstjóri skipulags-og umhverfissviðs
Fundargerð ritaði: Bergný Jóna Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs

Í dag var gefin út ný reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

Ákvæði reglugerðarinnar,  sem fela í sér hertar aðgerðir gegn heimsfaraldri Covid-19, taka gildi á miðnætti 31. október og gilda til  og með 17. nóvember 2020.

Með hliðsjón af ákvæðum reglugerðarinnar ákveður aðgerðastjórn eftirfarandi aðgerðir varðandi starfsemi og þjónustu Suðurnesjabæjar og gildir það meðan framangreind reglugerð er í gildi:

 Ráðhúsin í Garði og Sandgerði:

• Lokað verður fyrir aðgengi að ráðhúsunum.
• Þeim sem þurfa að reka erindi við starfsfólk í ráðhúsum er bent á að senda erindi í tölvupóstfangið afgreidsla@sudurnesjabaer.is, eða hafa samband í síma 425-3000 og panta viðtal við viðkomandi starfsmenn.
• Starfsmannahópum verður skipt upp í minni hópa og þess gætt að ekki sé samgangur milli hópa.

 

Íþróttamiðstöðvum verður lokað fyrir aðgengi almennings.  Á það við um sundlaugar, íþróttasali og líkamsræktarstöðvar.

Starfsemi almenningsbókasafns mun liggja niðri og lokað fyrir aðgengi almennings.

 Starfsemi skammtímavistunar í Heiðarholti verður endurskipulögð.  

 Starfsdagur verður í grunnskólunum mánudaginn 2. nóvember, til að stjórnendur fái svigrúm til að endurskipuleggja starfsemina.  Aðgerðastjórn mun funda með stjórnendum um starfsemi grunnskólanna kl. 12:00 mánudaginn 2. nóvember.

 Félagsmiðstöðvar ungmenna, eldri borgara og öryrkja verður lokað mánudaginn 2.nóvember, meðan unnið verður að endurskipulagningu starfseminnar.  

Aðgengi utanaðkomandi aðila að starfsstöðvum stofnana Suðurnesjabæjar verður óheimil, nema þar sem gilda sérstakar verklagsreglur um aðgengi að einstökum stofnunum.

 Aðgerðastjórn leggur áherslu á að íbúar og starfsfólk Suðurnesjabæjar fari eftir þeim reglum og leiðbeiningum sem almannavarnir, landlæknir og sóttvarnalæknir hafa gefið út er varðar einstaklingsbundnar smitvarnir.  

 Fundi lokið kl. 17:00.

Getum við bætt efni síðunnar?