Fara í efni

Auglýsing um skipulagsmál í Suðurnesjabæ

Auglýsing um skipulagsmál í Suðurnesjabæ

Lýsing vegna breytingar á Aðalskipulagi Garðs 2013-2030

Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar hefur samþykkt til kynningar lýsingu vegna breytingar á Aðalskipulagi sveitarfélagsins Garðs 2013-2030. Breytingin felst stækkun svæðis með skilgreinda notkun afþreyingar- og ferðamannasvæðis til suðurs á skilgreint  opið svæði í núgildandi skipulagi.  Lýsingin er kynnt á heimasíðu Suðurnesjabæjar, www.sudurnesjabaer.is og skulu athugasemdir og ábendingar hafa borist  skriflega eigi síðar fimmtudaginn 25. ágúst 2021.

Tillaga að deiliskipulagi við Iðngarða í Suðurnesjabæ

Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar samþykkti þann 7. október 2020 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Iðngarða í Garði, Suðurnesjabæ skv. 1. mgr.41. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Leitast er við að nýta landkosti svæðisins sem best og byggja á þeim grunni sem fyrir er en á svæðinu eru nú 26 hús, íbúðar-,atvinnu og iðnaðarhúsnæði.  Samanlögð stærð svæðisins er um 21 ha, þar af 12,4 ha athafnasvæði, 1,5 ha íbúðasvæði og 7 ha opin svæði.  Um er að ræða 42 misstórar lóðir undir fjölbreytta athafnastarfssemi og 2 nýjar íbúðahúsalóðir.

Við gildistöku skipulagsins fellur eldra deiliskipulag við Iðngarða út sem var samþykkt 12. mars 1992.

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi íbúðarsvæðis ofan Skagabrautar og Búmannasvæði í Suðurnesjabæ

Bæjarráð Suðurnesjabæjar samþykkti þann 14. júlí 2021 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi íbúðarsvæðis ofan Skagabrautar og Búmannasvæði í Garði, Suðurnesjabæ skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breytingin felst í því að húsgerð F, keðjuhús á einni hæð við Þrastarland og Kríuland fellur út.  Í stað húsagerðar F kemur ný húsagerð I, tvíbýlishús á tveimur hæðum. Íbúðafjöldi breytist ekki. Í stað 14 keðjuhúsa koma 7 tvíbýlishús á tveimur hæðum og lóðamörk breytast.  Lega syðri hluta götunnar Kríulands er einfölduð og lögð í beinu framhaldi af Þrastarlandi.

Skipulagstillögurnar verða til sýnis á bæjarskrifstofu Suðurnesjabæjar, Sunnubraut 4, Garði frá og með miðvikudeginum 8. júlí til og með fimmtudagsins 7. september 2021. 

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar til fimmtudagsins 7. september 2021. Athugasemdir eða ábendingar skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa  með tölvupósti á jonben@sudurnesjabaer.is, eða á bæjarskrifstofuna í Garði, b.t. skipulagsfulltrúa, Sunnubraut 4, 250 Suðurnesjabæ.

Jón Ben. Einarsson,

Skipulagsfulltrúi Suðurnesjabæjar