Barnaverndarþjónusta
Markmið barnaverndarþjónustu er að tryggja börnum viðunandi uppeldisskilyrði með því að styrkja fjölskyldur og beita úrræðum til verndar einstaka börnum þegar það á við. Með börnum er átt við einstakling undir 18 ára aldri.
Hvert á að hafa samband ef áhyggjur af barni koma upp?
Viljir þú tilkynna um aðstæður barns getur þú hringt í síma 425 3000 á dagvinnutíma og fengið að ræða við starfsmenn barnaverndar. Komi upp neyðartilvik eftir að skrifstofu hefur verið lokað, getur þú hringt í 112 og sagt frá áhyggjum þínum. Einnig er hægt að senda tilkynningu rafrænt hér að neðan:
Hver getur tilkynnt til barnaverndarþjónustu?
Öllum er skylt að tilkynna til barnaverndarþjónustu ef þeir hafa ástæðu til að ætla að barn búi við óviðunandi uppeldisaðstæður, verði fyrir ofbeldi eða annarri vanvirðandi háttsemi eða stofni heilsu sinni og þroska í alvarlega hættu. Einnig er skylt að tilkynna ef grunur leikur á að lífi ófædds barns sé stofnað í hættu.
Almenningur getur tilkynnt til barnaverndarþjónustu undir nafnleynd. Það þýðir að þó barnaverndarstarfsmaður fái nafn og símanúmer þess sem tilkynnir þá mun starfsmaðurinn halda því leyndu fyrir þeim sem málið snýr að. Þeir sem hafa afskipti af börnum, svo sem starfsmenn leikskóla, skóla, frístunda og heilbrigðisstofnanna er skylt að tilkynna til barnaverndarþjónustu. Nafnleynd á ekki við um þessa aðila þegar kemur að tilkynningum.
Hvað gæti legið að baki tilkynningu um aðstæður barna og unglinga?
- Endurtekin slys og óhöpp sem hægt hefði verið að fyrirbyggja
- Endurteknir áverkar sem barn á erfitt með að útskýra
- Vannæring
- Lélegur fatnaður og umhirða sem samræmist ekki aðstæðum
- Óeðlileg útivist og endurtekin brot á útivistarreglum
- Áfengis- eða vímuefnaneysla foreldra
- Almennt vanhæfi foreldra
- Atriði sem sérstaklega varða unglinga
- Áfengis- og vímuefnaneysla
- Léleg skólasókn
- Endurtekin afbrot
- Ofbeldishegðun
- Þunglyndi, geðræn vandkvæði, sjálfsvígshugleiðingar
Hvað gerir barnaverndarþjónusta?
Þegar barnaverndarþjónusta hefur fengið tilkynningu um barn, meta barnaverndarstarfsmenn hvort ástæða sé til að kanna málið nánar. Foreldrar barns eru í flestum tilvikum látnir vita af tilkynningu og vinnunni sem mun fara í gang. Undantekningar eiga við ef barn er talið vera í hættu í umsjá foreldra og það talið þjóna hagsmunum barnsins að foreldri viti ekki af könnuninni í bili.
Vinna barnaverndarþjónustu sem fer af stað þegar ákvörðun hefur verið tekinn um að kanna skuli málið, felst í því að fá greinargóðar upplýsingar um barnið og hagi þess, svo stuðningur og aðstoð við barn, foreldra og fjölskyldu verði sem markvissastur. Í flestum tilfellum felst stuðningur barnaverndarþjónustu í stuðningsviðtölum, ráðgjöf, fræðslu og leiðbeiningum. Gangi samstarf milli barnaverndarþjónustu og foreldra ekki upp og aðstæður barns eru enn taldar óviðunandi getur reynst nauðsynlegt að barn fari í fóstur. Mikilvægt er að hafa í huga að fósturráðstöfun kemur aðeins til greina ef öll önnur og vægari úrræði hafa ekki skilað tilsettum árangri.