Heimgreiðslur
Heimgreiðslur eru ætlaðar til að styðja við fjölskyldur með ung börn á meðan beðið er eftir leikskólaplássi eða annarri dagvistun. Hér fyrir neðan eru nánari upplýsingar um fyrirkomulag heimgreiðslna hjá Suðurnesjabæ, fjárhæðir og gildistíma greiðslna.
Heimgreiðslur eru kr. 104.000 fyrir hvern mánuð. Fyrsta greiðsla hefst þegar barn hefur náð 12 mánaða aldri. Síðasta greiðsla er greidd þann mánuð sem barn verður tveggja ára, eða þar til barni er boðin innganga í leikskóla eða hefur hafið vistun hjá dagforeldri. Heimgreiðslur eru ekki greiddar eftir að barni hefur verið boðin innganga í leikskóla eða hefur hafið vistun hjá dagforeldri. Foreldrar bera ábyrgð á að segja upp heimgreiðslum þegar barn kemst að hjá dagforeldri eða í leikskóla. Einnig ber þeim að upplýsa sveitarfélag ef lögheimili færist úr Suðurnesjabæ. Annars hætta greiðslur sjálfkrafa þegar barn nær tveggja ára aldri.