Fara í efni

Sundlaugar

Í Suðurnesjabæ eru tvær íþróttamiðstöðvar með sundlaugum, fjölbreyttri aðstöðu til íþróttaiðkunar og líkamsræktarsali.

Forstöðumaður Íþróttamiðstöðva í Suðurnesjabæ er Einar Karl Vilhjálmsson.

Íþróttamiðstöðin í Sandgerði

Vetraropnun :
  • Opið virka daga 06:30-21:00 (sundlaug lokar 20:30)
  • Opið um helgar 10:00-16:00
Sumaropnun :
  • Opið virka daga kl. 06:30-21:00
  • Opið um helgar kl. 09:00-17:00 
Hafa samband :

Íþróttamiðstöðin í Sandgerði er með góða aðstöðu fyrir íþróttir og leiki. Þar er íþróttasalur með  löglegum körfuboltavelli ásamt tilheyrandi búnings- og hreinlætisaðstöðu. Í húsinu er líkamsræktarstöð búin lóðum og tækjum fyrir fjölbreytta líkamsþjálfun.

Sundlaugin í Sandgerði býður upp á 25m keppnislaug, vaðlaug og tvær vatnsrennibrautir. Þar eru eining tveir heitir pottar, gufubað og kaldur pottur.

Íþróttamiðstöð Garðs

Vetraropnun : 
  • Opið virka daga 06:00-21:00 (sundlaug lokar 20:30)
  • Opið um helgar 10:00-16:00
Sumaropnun : 
  • Opið virka daga kl. 06:00-21:00
  • Opið um helgar kl. 09:00-17:00
 Hafa samband : 

Íþróttamiðstöð Garðs býður upp á 25 x 8 metra útisundlaug, heita potta, vaðlaug, gufubað og rennibraut. Í íþróttamiðstöðinni er líkamsræktarstöð þar sem fjölbreytt framboð er á búnaði og líkamsræktartímum. Fullbúið íþróttahús er á staðnum fyrir alla íþróttaiðkun, keppnir, sýningar og ráðstefnur.

 

 

 

 

Getum við bætt efni síðunnar?