Vitadagar - Hátíð milli vita

Hér má nálgast heildardagskrá Vitadaga 2026
Mánudagur 24. ágúst
Litagleði í Suðurnesjabæ
Við hvetjum íbúa til að hittast og skreyta göturnar og hverfin saman.
15:00 Kaffi Gola.
Syngjum saman hver með sínu nefi. Veitingasala og gleði.
16:30 Sandkastalagerð í Garðskagafjöru.
Skreytum fjöruna með hinum ýmsu kastölum.
Börn í fylgd með forráðamönnum. Munið eftir skóflu og fötu.
16:30 Fjölskylduquiz.
Fróðleg og skemmtileg stund á bókasafninu.
18:15 Samveruganga.
Gengið frá Þekkingarsetrinu í Sandgerði kl.18:15 og frá Víðisvelli í Garði kl.18:30 að Golfskálanum.
Grill í boði Kjörbúðarinnar og Kjötsúpa í boði Skólamatar.
Sirkus Íslands skemmtir.
Þriðjudagur 25. ágúst
13:00-15:00 Boccia og kaffi í Skjólgarði, dagdvöld aldraðra, Garðbraut 85.
Hvetjum eldri borgara sérstaklega til að mæta.
16:30 Uppskeruhátíð sumarlestursins á Bókasafni Suðurnesjabæjar.
18:00 Ganga að Prestvörðunni-Leiru eftir nývígðum stíg.
Helga Ingimundardóttir leiðir gönguna. Mæting við golfskálann í Leiru. Korters ganga hvor leið.
18:00 Vitahlaupið.
Tvær hlaupaleiðir í boði og barnahlaup.
Skráning og nánari upplýsingar á netskraning.is/vitahlaupid.
19:00-22:00 Prjónakaffi í Auðarstofu – öll velkomin.
“Pop-up” frá Handavinnubarnum og Handbragð.
20:00 Sagnakvöld í Efra-Sandgerði í umsjón Lions manna og kvenna.
Skemmtilegar frásagnir og gestum boðið að taka til máls um eftirminnilegar minningar úr sveitarfélaginu.
Fríða Dís og Smári flytja tónlist. Veitingasala.
20:00-22:00 Pottakvöld karla í sundlauginni í Garði.
Léttar veitingar og skemmtun.
Miðvikudagur 26. ágúst
14:00 Auðarstofa-félagsstarf aldraðra.
Tónlistaratriði og veitingar.
17:00 Fjölskyldubingó í Gerðaskóla.
Í umsjón barna- og unglingaráðs Reynis/Víðis.
Pizzusala og sjoppa á staðnum. Bingóspjald: 1.000 kr.
17:30 Söguganga í Sandgerði.
Söguganga Merkra manna um merkingu gamalla húsa í Suðurnesjabæ. Gengið um Sandgerði. Ný hús hafa bæst við frá því í fyrra. Mæting við Suðurgötu 1.
18:00-20:00 Hverfagrill.
Við hvetjum íbúa í öllum hverfum að koma saman, grilla og njóta – þar sem þið skipuleggið ykkar eigin hitting í götu, garði eða opnu rými í hverfinu.
19:00 Sjósund.
Bylgja og Kristbjörg leiða sjósund. Mæting við Bæjarskersfjöru.
20:00-22:00 Pottakvöld kvenna í sundlauginni í Sandgerði
Eva Ruza og Hjálmar, Blush, léttar veitingar o.fl. 20 ára aldurstakmark.
Fimmtudagur 27. ágúst
Hádegisskemmtun hjá grunnskólum Suðurnesjabæjar fyrir nemendur.
Brúðubíllinn skemmtir leikskólabörnum á Gefnarborg.
16:00-18:00 Opið hús í Tónlistarskólanum í Garði.
Fólk er velkomið að kíkja í kaffi, skoða skólann, prófa hljóðfæri og spjalla við starfsfólk.
16:30 Veitingsala og gleði við Brons völlinn.
17:30 Reynir - Víðir á Brons vellinum.
Frítt á leikinn í boði velunnara Reynis.
17:30 Söguganga í Garði.
Söguganga Merkra manna um merkingu gamalla húsa í Suðurnesjabæ. Gengið um Garð. Ný hús hafa bæst við frá því í fyrra. Mæting við Garðbraut 35.
21:00 Quiz með Nabblanum í Samkomuhúsinu í Sandgerði.
Fjáröflunarviðburður í umsjón barna- og unglingaráðs Reynis/Víðis.
Veitingasala, lukkumiðar og fl. Hámark 4 saman í liði.
1.500 kr þátttökugjald.
Föstudagur 28. ágúst
Brúðubíllinn skemmtir leikskólabörnum á Grænuborg.
13:00-17:00 Hoppland við Sandgerðishöfn.
Hægt að leigja blautbúninga. Pallar, trampólín og mikil gleði.
15:00-17:00 Opið hús í Tónlistarskóla Sandgerðis.
Öllum velkomið að kíkja í kaffi, skoða skólann, prófa hljóðfæri og spjalla við starfsfólk.
15:30 Norðurbær-Suðurbær.
Fótboltamót sem fer fram á Brons vellinum. Skráning og nánari upplýsingar nordursudurbaer.is/skraning.
18:00-21:00 Opnun listasýningar í Ráðhúsinu í Garði.
Léttar veitingar og Kósýbandið.
20:00 Þungarokk á milli vita.
Hljómsveitirnar Aesculus og Frostborn frá Suðurnesjabæ spila í portinu við Vélsmiðju Sandgerðis.
20:00 Lopapeysukvöld á vegum ungmennaráðs Suðurnesjabæjar. Í brekkunni við Tónlistarskólann í Garði (Sæborg).
Fram koma: Elísa Tan, Ólafur Pétur, Fosteii/Steini, Óli Torfa trúbador, Aron Kristinn.
Öll velkomin.
Stórdansleikur með hljómsveitinni Nostalgíu.
Ball í Samkomuhúsinu í Sandgerði.
Miðaverð við hurð: 5.000 kr.
Laugardagur 29. ágúst - Hátíðarsvæði við Sandgerðisskóla
Hoppukastalar, fussball, andlitsmálning, sölubásar o.fl.
13:00-15:00 Fjölskylduskemmtun á sviði
- Kynnar: Birkir Frosti og Halla úr Ungleikhúsinu
- Leikskólabörn Suðurnesjabæjar syngja
- Hvolpasveitin
- Birkir Frosti
- Bjössi brunabangsi
- DJ Ragga Holm-Rögguvísur.
20:00-22:00 Kvöldskemmtun á sviði
- Kynnir: Árni Árna
- Guðjón Þorgils
- KK
- Kristmundur Axel
- Stebbi Hilmars
- Auddi og Steindi
22:15 Flugeldasýning í umsjá Björgunarsveitarinnar Sigurvonar.
Staðsetning: Sjávargata við Sandgerðishöfn.
Laugardagur 29. ágúst - Dagskrá utan hátíðarsvæðis
09:00 Golfklúbbur Sandgerðis-Opna Icewear mótið.
Skráning og nánari upplýsingar á golf.is/golfbox. Glæsilegir vinningar.
10:30-12:00 Ástarsöguganga.
Söguganga bókarinnar: Ástarsaga í vitunum. Sögumaður er höfundur verkefnisins: Hjalti Óla. Gangan hefst við gamla Garðskagavita.
11:00 Dorgveiðikeppni við Sandgerðishöfn.
12:30 Körfuboltadeild Reynis.
Körfuboltafjör fyrir alla á vellinum við Sandgerðisskóla.
14:00-17:00 Handverksmarkaður í Miðhúsum.
Kaffi og vöfflusala.
14:00-17:00 Efra Sandgerði.
Kaffi og vöfflusala Lionsklúbbsins Eldeyjar.
16:00 Bjórhlaup Litla brugghússins.
Forskráning og nánari upplýsingar á Facebook síðu Litla brugghússins.
Þátttökugjald í forsölu 4.000 kr. Þátttökugjald á hlaupadegi, 4.500 kr.
Sunnudagur 30. ágúst
12:00-13:00 Þrautabraut fyrir yngstu börnin.
2-5 ára börn velkomin með forráðamönnum í íþróttahúsið í Sandgerði.
13:00 Samhjól með Bergný úr Team Rynkeby.
Hjólað verður frá Sandgerðisvita að Garðskagavita og til baka. Þátttakendur geta mætt við annan hvorn vitann og valið sjálfir hvort þeir hjóla alla leiðina eða annan legginn.
20:00 GÓSS - Tónleikar í Útskálakirkju.
Miðasala á tix.is
Aðrir viðburðir
Sjólyst/Unuhús
Opið laugardag og sunnudag frá 13:00-17:00.
Vöfflukaffi og fl. Eva K.Einarsd, nemandi Tónlistarskólans í Garði spilar og syngur á laugardag kl.15:00.
Ratleikur – Reykjanes jarðvangur (QR kóði)
Listasýning í Ráðhúsinu, Sunnubraut 4.
Föstudagur: 18:00-21:00.
Laugardagur: 13:00-18:00.
Sunnudagur 13:00-16:00.
Nánari upplýsingar á facebook síðu listasýningar
Bragginn, safn frá gamla tímanum. Skagabraut 17.
Opið 13:00-17:00 þriðjudag og 12:30-16:30 miðvikudag. Frítt inn.
Byggðasafnið á Garðskaga.
Opið alla daga vikunnar frá kl.10:00-17:00. Frítt inn.
Vitagusa í Leirunni.
Miðvikudag og sunnudag kl.17:00.
Skráning á Facebook: Steinunn Saunagus. Léttar veitingar. Verð, 5.500 kr
Myndlistarsýning við Varaveg í Garði.
Föstudagur 28. ágúst - Sunnudagur 30. ágúst
Nánari upplýsingar á facebook síðu myndlistarsýningar
Þekkingarsetur Suðurnesja.
Opið mán-fös frá 10:00-16:00 og lau-sun frá 13:00-17:00. Frítt inn yfir helgina.
Sýningar: Fróðleiksfúsi (á íslensku og pólsku), Heimskautin heilla, Huldir heimar hafsins-Þangálfarnir.
Hvalavöktun á Garðskaga: auglýst síðar.
Wipeout braut í sundlaugum Suðurnesjabæjar
- nánar auglýst á samfélagsmiðlum