Fara í efni

Suðurnesjabær óskar eftir tilnefningum til Íþróttamanns ársins 2023

Suðurnesjabær óskar eftir tilnefningum til Íþróttamanns ársins 2023

Íþrótta- og tómstundaráð Suðurnesjabæjar óskar eftir tilnefningum frá almenningi um:

  • Íþróttafólk sem þykir hafa náð góðum árangri eða skarað framúr í sinni íþrótt á árinu 2023.
  • Einstaklinga sem hafa sýnt einstaka fórnfýsi og vinnusemi í þágu íþrótta- og æskulýðsmála og eiga skilið viðurkenningu á sínu framlagi.

Rökstuddum tilnefningum skal skila til afgreidsla@sudurnesjabaer.is fyrir 3. desember n.k.