Fara í efni

Móttaka framboðslista 2022

Móttaka framboðslista 2022

Almennar sveitarstjórnarkosningar  fara fram laugardaginn 14. maí 2022.

Frestur til að skila framboðslistum er til kl.12:00 á hádegi föstudaginn 8. apríl

Yfirkjörstjórn Suðurnesjabæjar veitir framboðslistum móttöku þann dag frá kl. 10:00 til kl. 12:00 á hádegi á fyrstu hæð Vörðunnar, Miðnestorgi 3.

Yfirkjörstjórn vekur sérstaka athygli á 39. gr. laga um kosningu til sveitarstjórna nr. 112/2021, en þar er kveðið á um fjölda meðmælenda með framboðslistum. Skulu meðmælendur hvers lista vera að lágmarki 40 og að hámarki 80.

Yfirkjörstjórn Suðurnesjabæjar