Móttaka framboðslista 2022
Móttaka framboðslista 2022
04. apríl 2022
Almennar sveitarstjórnarkosningar fara fram laugardaginn 14. maí 2022.
Frestur til að skila framboðslistum er til kl.12:00 á hádegi föstudaginn 8. apríl
Yfirkjörstjórn Suðurnesjabæjar veitir framboðslistum móttöku þann dag frá kl. 10:00 til kl. 12:00 á hádegi á fyrstu hæð Vörðunnar, Miðnestorgi 3.
Yfirkjörstjórn vekur sérstaka athygli á 39. gr. laga um kosningu til sveitarstjórna nr. 112/2021, en þar er kveðið á um fjölda meðmælenda með framboðslistum. Skulu meðmælendur hvers lista vera að lágmarki 40 og að hámarki 80.
Yfirkjörstjórn Suðurnesjabæjar