Hafnarvörður við Sandgerðishöfn
Hafnarvörður við Sandgerðishöfn
27. ágúst 2021
Sandgerðishöfn óskar eftir að ráða hafnarvörð í fullt starf.
Helstu viðfangsefni:
- Vigtun og skráning sjávarafla
- Öryggiseftirlit
- Þjónusta við skip, s.s. raða skipum í höfn, binda skip við bryggju og afgreiðsla á vatni og rafmagni
- Þrif og almennt viðhald á hafnarsvæði
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntun og hæfniskröfur
- Góð almenn tölvukunnátta
- Æskilegt er að viðkomandi hafi réttindi til vigtunar sjávarafla
- Þjónustulund, stundvísi og hæfni í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
Vinnutími og launakjör
Unnið er á vöktum og taka laun mið af starfsmati og kjarasamningum viðkomandi BSRB/ASÍ félaga við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Við hvetjum alla áhugasama til þess að sækja um
Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist á netfangið magnus@sudurnesjabaer.is eða afgreidsla@sudurnesjabaer.is
Upplýsingar um starfið veitir bæjarstjóri í síma 425 3000.
Umsóknarfrestur er til og með 6. september 2021.