Forstöðumaður dagdvalar fyrir aldraða í Suðurnesjabæ
Forstöðumaður dagdvalar fyrir aldraða í Suðurnesjabæ
Suðurnesjabær auglýsir stöðu forstöðumanns dagdvalar fyrir aldraða í Suðurnesjabæ lausa til umsóknar. Um er að ræða nýja starfseiningu og kemur forstöðumaður til með að móta starfsemina í samstarfi við yfirstjórn sveitarfélagsins. Starfið heyrir undir fjölskyldusvið Suðurnesjabæjar, sem heldur utan um félags-, frístunda- og fræðsluþjónustu sveitarfélagsins.
Markmiðið dagdvalarinnar er að styðja aldraða einstaklinga til að búa sem lengst á eigin heimilum og að rjúfa félagslega einangrun þeirra. Einnig að viðhalda og örva einstaklinga til bættrar andlegrar, líkamlegrar og félagslegrar heilsu.
Verkefni:
- Stefnumótun fyrir dagdvöl aldraðra í Suðurnesjabæ
- Yfirumsjón með rekstri og daglegri starfsemi dagdvalar, s.s. áætlunargerð og fjármál
- Mannauðsmál einingar, s.s. ráðningar og fræðsla til starfsfólks
- Eftirlit með aðbúnaði og árangri þjónustunnar
- Stuðningur og ráðgjöf til þjónustuþega og aðstandenda
- Upplýsingamiðlun og skráning í kerfi
- Þátttaka í þróun ferla og umbóta í málefnum eldri borgara
- Önnur verkefni í samráði við næsta yfirmann
Menntun og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi er áskilin, t.d. hjúkrunarfræði, iðjuþjálfun eða félagsráðgjöf, sem og réttindi til að starfa sem heilbrigðisstarfsmaður, sbr. lög nr. 34/2012.
- Reynsla af stjórnun eða sambærilegu starfi er kostur
- Reynsla af notkun mælitækja t.d. Rai er kostur
- Jákvæðni, framúrskarandi samskiptafærni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Fagmennska og frumkvæði
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
Laun eru greidd samkvæmt gildandi kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til og með 19. nóvember 2021
Áhugasamir einstaklingar sem uppfylla menntunar- og hæfniskröfur eru hvattir til að sækja um. Umsókn skal fylgja starfsferilsskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og settur fram rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Afrit af prófskírteini og leyfisbréfi þurfa að fylgja umsókn.
María Rós Skúladóttir deildarstjóri félagsþjónustu, veitir upplýsingar um starfið (netfang mariaros@sudurnesjabaer.is, s: 425-3000).
Umsóknum skal skilað á rafrænu formi á netfangið afgreidsla@sudurnesjabaer.is
Suðurnesjabær er næst stærsta sveitarfélagið á Suðurnesjum með um 3.700 íbúa og um 280 starfsmenn. Sveitarfélagið leggur áherslu á að ráða til starfa fólk sem getur veitt bestu þjónustu sem völ er á af þekkingu, ábyrgð og metnaði.