Fara í efni

Fasteignagjöld 2021

Fasteignagjöld 2021

Álagningarseðlar fasteignagjalda fyrir árið 2021 eru nú aðgengilegir á www.island.is undir flipanum „Mínar síður“

Gjalddagar fasteignagjalda eru tíu, sá fyrsti þann 25. janúar og sá síðasti 25. október 2021. Eindagi fasteignagjalda er 30 dögum eftir gjalddaga. Afsláttur af fasteignaskatti er veittur til elli- og örorkulífeyrisþega sem eiga lögheimili í Suðurnesjabæ og búa í eigin íbúð.

Hægt að sjá nánar í gjaldskrá fasteignagjalda.

Álagningaseðlar og greiðsluseðlar eru almennt ekki sendir út í pappírsformi. Hægt er að óska eftir að fá greiðslu- og álagningaseðil sendan heim hjá þjónustuveri Suðurnesjabæjar í síma 425-3000 eða á netfanginu afgreidsla@sudurnesjabaer.is