Fara í efni

Úthlutun úr Menningarsjóði Suðurnesjabæjar 2023

Úthlutun úr Menningarsjóði Suðurnesjabæjar 2023

Þriðjudaginn 18. apríl var styrkjum úthlutað úr Menningarsjóði Suðurnesjabæjar. Athöfnin fór fram á Þekkingarsetri Suðurnesja þar sem styrkhöfum og gestum var boðin leiðsögn um safnið og fræðslu um þá mikilvægu og metnaðarfullu starfsemi sem er í húsinu. Hanna María Kristjánsdóttir forstöðumaður setursins sagði gestum frá starfseminni.

Menningarsjóður Suðurnesjabæjar byggir stoðir sínar á gjöf frá Litla leikfélaginu sem starfaði í Garði en skrifað var undir samkomulag um gjöfina í september 2020. Reglur sjóðsins má finna á heimasíðu Suðurnesjabæjar en að jafnaði er úthlutað úr sjóðnum einu sinni á ári.

Oddný Kristrún Ásgeirsdóttir formaður ferða-, safna- og menningarráðs stýrði dagskrá og afhenti styrki fyrir hönd ráðsins en að þessu sinni var úthlutað styrkjum fyrir 1.900.000 kr. til sjö aðila.

  • Almenningsbókasafn Suðurnesjabæjar fékk úthlutað kr. 150.000 til að mæta kostnaði við fræðsluerindi sem safnið stendur fyrir.
  • Elín Yngvadóttir fékk úthlutað kr. 300.000 vegna námskeiðahalds í olíumálun sem mun standa íbúum Suðurnesjabæjar til boða.
  • Ferskir vindar fengu úthlutað kr. 250.000 vegna útgáfu á bæklingi vegna hátíðarinnar.
  • Hollvinir Unu Guðmundsdóttur í Sjólyst fengu úthlutað kr. 300.000 fyrir verkefni sem unnið er að og tengjast starfseminni.
  • Knattspyrnufélagið Víðir fékk úthlutað kr. 400.000 fyrir verkefni sem snýr að því að koma sögu félagsins á stafrænt form.
  • Útskálakirkja fékk úthlutað kr. 300.000 til að standa straum að tónleikahaldi.
  • Þekkingarsetur Suðurnesja fékk úthlutað kr. 200.000 vegna kynningar- og markaðsherferðar fyrir verkefnið Fróðleiksfúsi.

Í reglum sjóðsins segir m.a. að hlutverk Menningarsjóðs Suðurnesjabæjar sé að styrkja menningarstarfsemi í Suðurnesjabæ með fjárframlögum og efla þannig einstaklinga og félagsamtök til virkrar þátttöku. Þá er gert ráð fyrir að sjóðurinn fái framlag úr fjárhagsáætlun á hverju ári en að auki getur sjóðurinn tekið við gjöfum sem ætlaðar eru til að efla menningarlíf í Suðurnesjabæ og renna slíkar gjafir beint í sjóðinn.

Styrkhöfum er óskað til hamingju með styrkina og góðs gengis með verkefnin sín. Þá eru íbúar og gestir Suðurnesjabæjar hvattir til þess að taka þátt í þeim verkefnum sem styrkþegar standa að.