Suðurnesjabær óskar eftir tilnefningum til íþróttamanns ársins 2021
Suðurnesjabær óskar eftir tilnefningum til íþróttamanns ársins 2021
26. nóvember 2021
Íþrótta- og tómstundaráð Suðurnesjabæjar óskar eftir tilnefningum frá almenningi um
- Íþróttafólk sem þykir hafa náð góðum árangri eða skarað framúr í sinni íþrótt á árinu 2021.
- Einstaklinga sem hafa sýnt einstaka fórnfýsi og vinnusemi í þágu íþrótta- og æskulýðsmála og eiga skilið viðurkenningu á sínu framlagi.
Rökstuddum tilnefningum skal skila til rut@sudurnesjabaer.is fyrir 3.desember n.k.