Fara í efni

Umsóknir í Menningarsjóð Suðurnesjabæjar

Umsóknir í Menningarsjóð Suðurnesjabæjar

Í september 2020 var samkomulag undirritað á milli Suðurnesjabæjar og Litla leikfélagsins um stofnun Menningarsjóðs Suðurnesjabæjar. Í kjölfarið hófst vinna við nánari útfærslu sjóðsins og er nú fyrsta úthlutun úr sjóðnum auglýst til umsóknar. Umsóknarfrestur vegna úthlutana ársins 2022 er til og með 10. mars 2022.  

Umsækjendur eru beðnir um að kynna sér vel reglur sjóðsins sem samþykktar voru 11. ágúst 2021 og fylla út meðfylgjandi eyðublað þegar sótt erum í Menningarsjóðinn. Ferða-, safna- og menningarráð mun fara yfir umsóknir sem berast og úthluta styrkjum eftir mat á umsóknum.

Þá er vert að minna á 2. gr. í reglum um sjóðinn en þar segir m.a.:

Tilgangur sjóðsins er að styðja við menningarstarfsemi í Suðurnesjabæ sem og styrkja einstaklinga, félagasamtök, hópa og stofnanir til lista- og menningarsköpunar í sveitarfélaginu. Til að hljóta styrk úr sjóðnum verða umsækjendur, s.s. listamenn, félagasamtök, hópar, stofnanir eða menningarviðburðir að tengjast Suðurnesjabæ á einhvern hátt. Þá þurfa þeir sem eru í forsvari fyrir umsókn að vera með fasta búsetu í Suðurnesjabæ og viðburðir, ef svo ber við, sem sótt er um fyrir að fara fram í Suðurnesjabæ.

Ferða-, safna- og menningarráð Suðurnesjabæjar hvetur áhugasama einstaklinga til þess að kynna sér sjóðinn og taka þátt í að byggja upp áframhaldandi menningarstarfsemi í Suðurnesjabæ.