Bæjarhátíð í Suðurnesjabæ 22. - 28. ágúst
Bæjarhátíð í Suðurnesjabæ 22. - 28. ágúst
18. ágúst 2022
Grunnlitir hátíðarinnar eru bleikur og fjólublár. Undirbúningshópur bæjarhátíðarinnar hvetur íbúa og vinnustaði til þess að skreyta hjá sér, setja upp seríur og ljós og skapa stemningu í Suðurnesjabæ. Ef fólk vill skreyta í öðrum litum þá lífgar það bara enn meira upp á stemninguna.
- Hvernig væri að bjóða nágrönnunum í kaffi og spjall?
- Kannt þú á gítar eða kanntu að syngja? Þá er nú við hæfi að bjóða í garðpartý.
- Sköpum eitthvað nýtt og skemmtum okkur saman.
- Allt um dagskrána í viðburðadagatali neðst á heimasíðu
- Hægt er prenta dagskrána út