Vorið kemur heimur hlýnar
Vorið kemur heimur hlýnar
22. janúar 2021
Vetrarfundur Heklunnar, atvinnuþróunarfélags Suðurnesja og Markaðsstofu Reykjaness verður haldinn föstudaginn 29. janúar kl. 9 – 10:30.
Á fundinum verður farið yfir horfur í atvinnumálum með hækkandi sól og staðan fyrir sumarið tekin. Farið verður yfir möguleika á uppbyggingu, bókunarstöðu og þær breytingar sem framundan eru hjá flugrekstraraðilum til þess að bregðast við breyttri stöðu ferðaþjónustunnar vegna covid.
Erindi halda Sveinbjörn Indriðason forstjóri Isavia, Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair og Helga Árnadóttir framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Bláa Lónsins.
Fundarstjóri er Berglind Kristinsdóttir framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Nánari upplýsingar og skráning á vef Heklunnar.