Vorferð og sumarstemning hjá eldri borgurum í Suðurnesjabæ
Félagsstarf eldri borgara í Suðurnesjabæ hefur verið með öflugt og fjölbreytt starf síðustu vikur og mánuði. Þann 12. júní síðastliðinn fór hópurinn í sína árlegu vorferð og var ferðinni heitið um Vesturland, þar sem dagskráin var bæði fræðandi og skemmtileg.
Fyrsti áfangastaður dagsins var Hvanneyri í Borgarfirði, þar var borðaður ljúfengur hádegisverður í Landbúnaðarháskólanum. Að honum loknum fékk hópurinn fróðlega leiðsögn um svæðið og Landbúnaðarsafnið. Einnig var farið yfir sögu staðarins og landbúnaðar á Íslandi. Að leiðsögn lokinni var ekið að Hallgrímskirkju í Saurbæ þar sem sr. Sigurður Grétar sagði frá sögu Hallgríms Péturssonar og starfi hans á staðnum. Að því loknu var haldið í Vatnaskóg þar sem gestir nutu kaffiveitinga og stuttrar leiðsagnar um svæðið. Fyrsti almenni sumarbúðaflokkur sumarsins var nýtekinn til starfa þannig að líf og fjör ríkti á staðnum. Að lokum var ekið í gegnum fallega Hvalfjörðinn á heimleiðinni og þar lauk vel heppnuðum og ánægjulegum degi.
Auk vorferðarinnar hefur mikið verið um að vera hjá eldri borgurum í Suðurnesjabæ að undanförnu. Nýverið var haldið sumarlokahóf hjá eldri borgara þrekinu þar sem um 50 manns komu saman á Kaffi Golu. Þar áttu þátttakendur saman ánægjulega stund áður en farið var í sumarfrí og undirbúningur fyrir hauststarfið tekur við. Framundan er fjölbreytt og spennandi haustdagskrá með ýmsum viðburðum og fræðslu sem vonandi mun höfða til sem flestra.
Við í félagsstarfi eldri borgara í Suðurnesjabæ erum afar þakklát fyrir þann góða hóp sem sækir starfið í Miðhúsum og Auðarstofu. Án þeirra væri starfið ekki það sama. Starfið er bæði fjölbreytt og líflegt og hvetjum við sem flesta til að líta við, kynnast starfinu og taka þátt í þeirri skemmtilegu og félagslegu dagskrá sem boðið er upp á.
Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest í starfinu á ný þegar haustið gengur í garð.