Fara í efni

Viltu hjálpa?

Viltu hjálpa?

Stuðningsfjölskylda

Helstu verkefni stuðningsfjölskyldna eru að taka reglubundið á móti barni í dvöl og leyfa því að taka þátt í daglegu fjölskyldulífi.

Tilgangur með stuðningsfjölskyldu er að draga úr álagi á heimili barna, veita þeim tilbreytingu og stuðning auk þess að gefa þeim kost á aukum félagslegum tengslum. Algengast er að barn dvelji hjá stuðningsfjölskyldu eina til tvær helgar í mánuði. 

Hæfniskröfur:

  • Góðir samskiptahæfileikar
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Áhugi á að vinna með börnum og fjölskyldum
  • Hreint sakavottorð
  • Góðar heimilisaðstæður og heilbrigðisvottorð sé sótt um leyfi til að gerast stuðningsfjölskylda

Nánari upplýsingar veita

Fjölskyldusvið Suðurnesjabæjar, sími 425 3000