Við leitum eftir sumarstarfsmanni á Bókasafn Suðurnesjabæjar og sumar- og helgarstarfsfólki á Byggðasafnið á Garðskaga.
Langar þig til þess að starfa í fjölbreyttu og menningarlegu umhverfi í sumar og um helgar fram á haust?
Við leitum eftir sumarstarfsmanni á Bókasafn Suðurnesjabæjar og sumar- og helgarstarfsfólki á Byggðasafnið á Garðskaga.
Byggðasafnið á Garðskaga
Fullt starf í júní og júlí
Leitað er eftir einstaklingi til þess að taka að sér móttöku gesta, afgreiðslu og leiðsögn um safnið. Um er að ræða 100% vinnu í júní og júlí þar sem gert er ráð fyrir einhverri helgarvinnu.
Helgarvinna frá maí mánuði og fram á haust
Leitað er eftir einstaklingum til þess að taka að sér móttöku gesta, afgreiðslu og leiðsögn um safnið um helgar.
Hæfniskröfur:
- Rík þjónustulund, sjálfstæði og frumkvæði í starfi.
- Góð tungumálakunnátta í íslensku og ensku, fleiri tungumál eru kostur.
- Almenn tölvukunnátta.
- Áhugi á safnastarfi og sögu Suðurnesjabæjar og nágrennis
Bókasafn Suðurnesjabæjar
Leitað er eftir einstaklingi sem getur tekið að sér hlutastarf á bókasafninu í sumar, júní og júlí. Meginverkefnin á safninu eru að taka á móti gestum, afgreiða og aðstoða viðskiptavini.
Hæfniskröfur:
- Rík þjónustulund, sjálfstæði og frumkvæði í starfi.
- Góð tungumálakunnátta í íslensku og ensku, fleiri tungumál eru kostur.
- Almenn tölvukunnátta og þekking á samfélagsmiðlum.
- Áhugi á lestri og bókmenntum.
Allir áhugasamir eru hvattir til þess að sækja um, en störfin henta einstaklingum á öllum aldri, líka þeim sem eru komnir yfir miðjan aldur.
Umsóknir, merktar „Almenningsbókasafn“ eða „Byggðasafn“ ásamt ferilskrá skal senda á netfangið afgreidsla@sudurnesjabaer.is
Nánari upplýsingar veitir Margrét I. Ásgeirsdóttir, forstöðumaður safna, í síma 425 3008 eða á netfangið margret@sudurnesjabaer.is.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningar hefur verið tekin.
Launakjör eru skv. starfsmati og kjarasamningi Samband íslenskra sveitafélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til þriðjudagsins 10. maí 2022.