Fara í efni

Verksamningur vegna uppbyggingar leikskóla

Verksamningur vegna uppbyggingar leikskóla

Á dögunum undirritaði bæjarstjóri verksamning við Braga Guðmundsson ehf, um uppbyggingu á nýjum leikskóla við Byggðaveg í Sandgerði. 

Undirbúningur framkvæmda hófst með ýmis konar greiningum og yfirferð um marga þætti sem varða verkefnið og hefur verið unnið að því með einum eða öðrum hætti frá árslokum 2018. Bæjarstjórn skipaði stýrihóp um uppbyggingu nýs leikskóla og tók hann til starfa í nóvember 2019 og var stýrihópurinn skipaður bæjarfulltrúunum Fríðu Stefánsdóttur, Hólmfríði Skarphéðinsdóttur og Magnúsi S. Magnússyni. Með stýrihópnum unnu embættismenn sveitarfélagsins og hönnuðir. Aðal hönnuður leikskólans er JeEs arkitektar.

Verklegar framkvæmdir hófust 19. október 2021, þegar fjögur börn af leikskólum Suðurnesjabæjar tóku fyrstu skóflustungu og í kjölfarið hóf Ellert Skúlason ehf jarðvinnu á lóð leikskólans.  Framkvæmdir við uppbyggingu leikskólans voru boðnar út síðari hluta árs 2021 og tilboð opnuð þann 1. desember 2021. Í kjölfarið var samþykkt að taka tilboði Braga Guðmundssonar ehf í verkið.

Samningsverð verksamningsins er 675.600.000 og miðast við fullbyggðan 6 deilda leikskóla, en gert er ráð fyrir að fyrst í stað verði lokið við frágang á 4 deildum leikskólans. Miðað er við að starfsemi í leikskólanum geti hafist upp úr miðju ári 2023.