Fara í efni

Vel heppnuð hátíðarhöld á 17. júní í Suðurnesjabæ

Vel heppnuð hátíðarhöld á 17. júní í Suðurnesjabæ

Þjóðhátíðardagurinn 17. júní var haldinn hátíðlegur í Suðurnesjabæ með fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá sem vakti mikla ánægju meðal íbúa á öllum aldri. Þrátt fyrir smá rigningu, eins og oft vill verða á þessum degi, var góð mæting og gleðin allsráðandi.

Hátíðin hófst með fánahyllingu og á eftir fylgdi hátíðardagskrá. Guðjón Þ. Kristjánsson úr Ungmennaráði Suðurnesjabæjar var kynnir hátíðarinnar. Fjallkonan, Heba Lind Guðmundsdóttir, nýstúdent flutti ljóð eftir Ingibjörgu Sigurðardóttur og hátíðarræðu dagsins flutti Fanney Dórothe Halldórsdóttir, fyrrverandi skólastjóri Sandgerðisskóla og núverandi sviðsstjóri mennta- og lýðheilsusviðs Hafnarfjarðarbæjar. Hljómsveitin The Unstoppable spiluðu og sungu eitt lag en hljómsveitin er skipuð hæfileikaríkum nemendum úr 4.bekk í Tónlistarskóla Sandgerðis. Latibær frá Leikfélagi Keflavíkur mætti á svæðið og dagskránni á sviði lauk síðan með skemmtilegu atriði frá Sirkus Íslands.

Á svæðinu var úr nógu að velja fyrir börnin: hoppukastalar, barnalest, andlitsmálning, grillaðar pylsur í boði Suðurnesjabæjar, sjoppa frá Reyni/Víði og hægt var að fara á hestbak. Það vakti síðan mikla athygli og gleði meðal barnanna þegar Brunavarnir Suðurnesja mættu á svæðið með körfubíl og köstuðu nammi yfir viðstadda.

Suðurnesjabær þakkar öllum þeim sem komu að undirbúningi og framkvæmd dagsins og þeim fjölmörgu íbúum sem mættu og gerðu daginn eftirminnilegan.

Myndir frá deginum: Magnús Orri Arnarson.