Fara í efni

Vegna umferðar nærri gosstöðvum í Geldingadal

Vegna umferðar nærri gosstöðvum í Geldingadal

Almannavarnir hafa gefið út leiðbeiningar til almennings vegna eldgoss í Geldingardal sem við hvetjum alla þá til að kynna sér sem hafa hug á því að fara á vettang.

Þá er bent á að hægt er að horfa á beint vefstreymi frá eldstöðvunum í Geldingadal á ruv.is.

  • Utanvegaakstur er ólöglegur.  
    • Þetta á við um öll vélknúin ökutæki, svo sem fjórhjól, sexhjól, mótorhjól. 
  • Það er mögulegt að leggja í Grindavík og við Bláa Lónið og ganga þaðan helgina 20.-21.3.  
    • Ferðin frá bílastæði tekur 4-6 klukkustundir og er eingöngu fyrir fólk sem vant er útivist í erfiðum aðstæðum. 
  • Veður getur breyst á skömmum tíma. Það er kalt og blautt og spáð roki um helgina. 
    • Vertu í gönguskóm, hlýjum  og vatnsheldum fatnaði. 
    • Gerðu ráð fyrir því að ferðin geti tekið lengri tíma en áætlað er. 
    • Vertu með nesti og vatn að drekka.  
    • Fylgstu vel með ferðafélögunum. Þreyta og ofkæling kemur fljótt.  
    • Haldið ykkur við fell og hryggi. Forðist dali og dældir í landslaginu. 
    • Það er hætta á grjóthruni. Varist brattar hlíðar.  
  • Það þarf ekki mikið út af að bregða til að villast. 
    • Vertu með staðsetningartæki. 
  • Símasamband á svæðinu er slæmt og getur þá orðið erfitt að kalla á hjálp ef þörf krefur. 
  • Gosstöðvar geta breyst og nýjar gossprungur mögulega opnast með litlum fyrirvara.  
  • Gasmengun er mest nálægt svæðinu og getur leynst í dölum og dældum þar sem það er sérlega varasamt. Gasmengun getur breyst með litlum fyrirvara ef gosið eykst skyndilega og varasamt að vera nálægt gosstöðvunum án mælitækja.  
    • Fólk á alltaf að halda sig undan vindi. Það þýðir að fólk á að vera með vindinn í bakið þegar það gengur að gosstöðvunum og í fangið þegar það gengur til baka.  
    • Gasmengunin sést ekki og fylgir ekki endilega þeim sýnilega gasmekki á svæðinu.  
    • Gasmengun getur verið lyktarlaus og þá er erfitt að verjast henni.
    • Gasmengun getur loðað við þó sýnilegur gosmökkur sé breyttur með breyttri vindátt 
    • Grímur sem notaðar eru til sóttvarna veita enga vörn gegn gasmengun. 
    • Ef þið finnið fyrir minnstu heilsufarseinkennum þá skulið þið forða ykkur strax með vindinn í fangið.