Fara í efni

Val á jóla- og ljósahúsum í Suðurnesjabæ

Val á jóla- og ljósahúsum í Suðurnesjabæ

Íbúar Suðurnesjabæjar hafa verið duglegir við að lýsa skammdegið upp og Suðurnesjabæ um leið. Líkt og undanfarin ár verða veittar viðurkenningar fyrir vel skreytt og skemmtileg jólahús og er valið í höndum Ferða-, safna- og menningarráðs Suðurnesjabæjar. Gert er ráð fyrir að tilkynnt verði um valið fimmtudaginn 21. desember næstkomandi.

Íbúar Suðurnesjabæjar geta nú sent inn ábendingar sem ráðið tekur svo tillit til í vali sínu. Þeir sem vilja senda inn ábendingar er bent á ábendingakerfi Suðurnesjabæjar en einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið afgreidsla@sudurnesjabaer.is eða hringja í síma 425 3000. Hægt verður að senda inn ábendingar til kl.13.00 mánudaginn 18. desember næstkomandi. 

Ferða-, safna- og menningarráð hvetur íbúa Suðurnesjabæjar til þess að fara í gönguferðir um sveitarfélagið og njóta jólaljósanna.

Meðfylgjandi mynd sýnir hús sem fengu viðurkenningar í desember 2022.