Fara í efni

Val á jóla- og ljósahúsum í Suðurnesjabæ

Val á jóla- og ljósahúsum í Suðurnesjabæ

Íbúar Suðurnesjabæjar hafa verið duglegir við að lýsa skammdegið upp og Suðurnesjabæ um leið. Líkt og undanfarin ár verða veittar viðurkenningar fyrir vel skreytt og skemmtileg jólahús og er valið í höndum Ferða-, safna- og menningarráðs Suðurnesjabæjar. Gert er ráð fyrir að tilkynnt verði um valið miðvikudaginn 21. desember á Þekkingarsetri Suðurnesja.

Þeir sem vilja senda inn ábendingar sem Ferða-, safna- og menningarráð mun taka tillit til í vali sínu er bent á ábendingakerfi Suðurnesjabæjar á heimasíðunni en einnig er hægt að senda ábendingar um falleg og skemmtileg jólahús með tölvupósti á netfangið afgreidsla@sudurnesjabaer.is eða hringja í síma 425 3000. Hægt verður að senda inn ábendingar til kl.12.00 fimmtudaginn 15. desember.

Ferða-, safna- og menningarráð hvetur íbúa Suðurnesjabæjar til þess að fara í gönguferðir um sveitarfélagið og njóta jólaljósanna.

Meðfylgjandi mynd sýnir hús sem fengu viðurkenningar í desember 2021.