Fara í efni

Upplýsingafundur vegna jarðhræringa

Upplýsingafundur vegna jarðhræringa

Upplýsingafundur vegna jarðhræringa á Reykjanesi verður haldinn á vegum almannavarnanefndar Suðurnesja utan Grindavíkur í Stapa Hljómahöll miðvikudaginn 8. nóvember kl 20:00.

Fundinum verður einnig streymt á Youtube en við bendum á að bara verður tekið spurningum frá Facebook síðu Reykjanesbæjar en ekki víðar. 

Fulltrúar frá Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra, Veðurstofunni, HS Orku, HS Veitum munu vera með framsögur og gefst fundargestum tækifæri til að spyrja spurninga í lok fundar.  Þeir sem horfa á streymið frá fundinum geta sett inn spurningar í athugasemdum við upptökuna.

Dagskrá:

  • Kristín Jónsdóttir, deildarstjóri og jarðskjálftafræðingur hjá Veðurstofunni
  • Kristinn Harðarson, framkvæmdastjóri framleiðslu hjá HS Orku
  • Páll Erland, forstjóri HS Veitna
  • Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn Almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra
  • Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra
  • Frummælendur sitja í pallborði ásamt Úlfari Lúðvíkssyni lögreglustjóra Suðurnesja, Otta Sigmarssyni formanni Landsbjargar og Ara Guðmundssyni verkfræðingi hjá Verkís og svara spurningum úr sal.
  • Magdalena Filimonow flytur úrdrátt á pólsku.

Fundarstjóri, Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar.