Tónlistarskóli Sandgerðis auglýsir eftir tónlistarkennurum
Suðurnesjabær leitar eftir tónlistarkennurum í Tónlistarskóla Sandgerðis.
Klassískur píanókennari óskast í 40-50% stöðu auk þess að sinna meðleik og fleiri greinum.
Rytmískur píanókennari óskast í 40-50% stöðu
Tónlistarskóli Sandgerðis er öflugur, lifandi tónlistarskóli þar sem ríkir góður andi. Skólinn leggur áherslu á lifandi, fjölbreytt starf sem er sýnilegt í samfélaginu. Blómlegt hljómsveita, samleiks og kórastarf er innan skólans.
Leitað er eftir áhugasömum einstaklingum sem sýna frumkvæði og sveigjanleika í starfi og eru virkir í tónlistarlífinu.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Kennsla nemenda á píanó.
- Spila með nemendum skólans á tónleikum og í áfangaprófum.
- Viðkomandi þarf að geta leitt samspil.
- Kostur er að viðkomandi geti tekið að sér kennslu í fleiri greinum og/eða leikið á fleiri hljóðfæri.
Hæfniskröfur:
- Háskólapróf í tónlist æskilegt eða tónlistarnám og reynsla sem nýtist í starfi
- Reynsla af kennslustörfum og meðleik æskileg
- Góð félagsleg færni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Mikill kostur er að viðkomandi sé virk tónlistarmanneskja í íslensku og/eða alþjóðlegu tónlistarlífi
Samkvæmt lögum um tónlistarskóla er skilyrði að umsækjendur hafi hreint sakavottorð.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félag tónlistarkennara/ félags íslenskra hljómlistarmanna.
Ráðið er í öll störf óháð kyni og er umsóknarfrestur er til og með 5. maí 2023. Ferilskrá og kynningarbréf merkt „Umsókn um starf tónlistarkennara“, berist til Tónlistarskóla Sandgerðis á netfangið tonosand@tonosand.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Halldór Lárusson, skólastjóri, netfang: tonosand@tonosand.is, eða í síma 425 3155.