Fara í efni

Þjóðhátíðardeginum var fagnað í Suðurnesjabæ

Þjóðhátíðardeginum var fagnað í Suðurnesjabæ

17. júní var fagnað hátíðlega í Suðurnesjabæ í dag í góðu veðri. Aðalhátíðardagskráin fór fram við Sandgerðisskóla en skipulagning og framkvæmd var í höndum foreldra og nemenda verðandi 10. bekkinga í Gerðaskóla og Sandgerðisskóla. Suðurnesjabær færir þeim bestu þakkir fyrir vinnuna. Þá fær Ragnhildur L. Guðmundsdóttir, kennari við Sandgerðisskóla, kærar þakkir fyrir aðstoð við fánahyllingu ásamt leikmönnum í 2. flokki knattspyrnudeilar Reynis og Víðis.

Dagskráin var fjölbreytt sem hófst á fánahyllingu og ávarpi fjallkonu sem að þessu sinni var í höndum Þórunnar Hafdísar Hill Ævarsdóttur, nýstúdents, sem flutti ljóðið Minni kvenna eftir Matthías Jochumsson. Ræðumaður dagsins var Marta Eiríksdóttir. Þá fluttu systkinin í Klassart, Smári og Fríða Dís, nokkur lög, Skemmtikraftakallarnir léku listir sínar, stúlkur úr Gerðaskóla sýndu dans og að lokum skemmtu Þura og Þorri yngstu kynslóðinni. Kynnir var Sigurður Smári Hansson. Þekkingarsetriði í Sandgerði og Byggðasafnið á Garðskaga buðu einnig í heimsókn.

Skemmtikraftar dagsins og allir þeir sem aðstoðuðu við framkvæmd fá kærar þakkir fyrir þeirra framlag.  Íbúum og gestum þökkum við fyrir komuna.

Meðfylgjandi eru myndir frá deginum: