Sveitarstjórnarkosningar laugardaginn 14. maí 2022
Kjörskrá og kjörstaðir í Suðurnesjabæ
Kjörskrá í Suðurnesjabæ vegna kosninga til sveitarstjórnar sem fram fara þann 14. maí 2022, liggur frammi almenningi til sýnis í ráðhúsunum í Garði og Sandgerði frá 20. apríl og fram að kjördegi.
Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá. Einnig er bent á kosning.is- Hvar á ég að kjósa.
Athugasemdum við kjörskrá skal beint til Þjóðskrár .
Kjörfundur fyrir kjósendur í póstnúmerum 245 og 246 Sandgerði er í Sandgerðisskóla.
Kjörfundur fyrir kjósendur í póstnúmerum 250 og 251 Garður er í Gerðaskóla.
Sérstök athygli er vakin á að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði.
Kjördagur sveitarstjórnarkosninga 14. maí 2022.
Kjörstaðir opna kl. 09:00 og loka kl. 22:00.
Á kjördag mun yfirkjörstjórn hafa aðsetur í Sandgerðisskóla sími 893 3730
Yfirkjörstjórn Suðurnesjabæjar