Fara í efni

Suðurnesjabær leitar eftir mannauðsstjóra

Suðurnesjabær leitar eftir mannauðsstjóra

Suðurnesjabær leitar að framsýnum og drífandi aðila í stöðu mannauðsstjóra. Leitað er að einstaklingi sem býr yfir drifkrafti, samskiptafærni og umbótasinnuðum hugsunarhætti.


Mannauðsstjóri sinnir eftirfylgni við mannauðsstefnu Suðurnesjabæjar, sér um alhliða ráðgjöf um mannauðsmál og stuðlar að velferð starfsfólks. Mannauðsstjóri er ábyrgur fyrir launaafgreiðslu, jafnlaunakerfi, ráðningarmálum, vinnuverndarmálum og öðru sem heyrir undir málaflokkinn. Mannauðsstjóri heyrir undir sviðsstjóra stjórnsýslusviðs. Um fullt starf er að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Efla stjórnun mannauðsmála í sveitarfélaginu með stuðningi og ráðgjöf um mannauðs- og launamál
  • Ábyrgð á innleiðingu og eftirfylgni með mannauðsstefnu og þátttaka í stefnumótun
  • Umsjón með launavinnslu, jafnlaunakerfi og jafnlaunavottun
  • Ábyrgð á ráðningarferli og nýliðaþjálfun í samstarfi við stjórnendur
  • Umsjón með starfsmanna- og stjórnendahandbókum, starfslýsingum, auk fræðslu og þjálfunar starfsfólks 
  • Umsjón og eftirfylgni með framkvæmd vinnustaðagreininga og starfsmannasamtala
  • Umsjón með vinnuverndarmálum og framkvæmd áhættumats á vinnustöðum í samvinnu við trúnaðarmenn.
  • Ábyrgð á endurskoðun og framkvæmd verkferla í mannauðsmálum í samvinnu við framkvæmdastjórn
  • Önnur verkefni í tengslum við mannauðsmál sveitarfélagsins


Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi er skilyrði og framhaldsmenntun er æskileg, s.s. á sviði mannauðsstjórnunar, stjórnunar eða opinberrar stjórnsýslu
  • Reynsla af sambærilegu starfi
  • Þekking og reynsla af launavinnslu og jafnlaunavottun er æskileg
  • Þekking á kjarasamningum og opinberri stjórnsýslu er æskileg
  • Reynsla af áætlanagerð er kostur
  • Þekking og reynsla af markþjálfun og mótun liðsheildar á vinnustað er kostur
  • Leiðtogafærni, frumkvæði og geta til að vinna sjálfstætt
  • Þjónustulund og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Mjög góð almenn tölvukunnátta er skilyrði, þekking á H3 launakerfinu er kostur
  • Góð hæfni til að tjá sig í ræðu og riti, á íslensku og ensku


Suðurnesjabær er næstfjölmennasta sveitarfélagið á Suðurnesjum með tæplega 3900 íbúa. Mikil uppbygging og gróska er í sveitarfélaginu, m.a. með uppbyggingu nýrra hverfa og byggingu nýs leikskóla. Í Suðurnesjabæ eru tveir grunnskólar, tvær íþróttamiðstöðvar og sundlaugar, bóka- og byggðasafn og Þekkingarsetur. Suðurnesjabær er heilsueflandi samfélag sem býður uppá nálægð við náttúruna og einstaka strandlengju sem umvefur sveitarfélagið.

Umsóknarfrestur er til og með 11. ágúst 2022. Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Nánari upplýsingar um starfið veita Hafdís Ósk Pétursdóttir (hafdis@intellecta.is) og Helga Birna Jónsdóttir (helga@intellecta.is) í síma 511 1225.