Fara í efni

Streymi frá íbúafundi í Grindavík vegna jarðhræringa á Reykjanesskaganum

Streymi frá íbúafundi í Grindavík vegna jarðhræringa á Reykjanesskaganum

Kæru íbúar Suðurnesjabæjar, 

Í dag, laugardag, kl. 14.30 munu vinir okkar í Grindavík halda íbúafund þar sem sérfræðingar og fulltrúar frá almannavörnum munu fara yfir stöðuna vegna jarðhræringanna sem nú standa yfir á Reykjanesskaganum.

Hægt verður að fylgjast með streymi frá fundinum kl.14.30 á heimasíðu Grindavíkurbæjar, YouTube rás Grindavíkurbæjar og á facebook síðu þeirra.

Einnig verður hægt að nálgast upptökur af fundinum ef fólk nær ekki að fylgjast með streyminu.

Þá er einnig bent á að á morgun, sunnudag, verður annar fundur þar sem fundarefnið verður túlkað á pólsku.