Fara í efni

Skólastjóri Sandgerðisskóla

Skólastjóri Sandgerðisskóla

Suðurnesjabær óskar eftir að ráða skólastjóra Sandgerðisskóla. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum, hefur víðtæka þekkingu á skólastarfi, framsækna skólasýn og er tilbúinn að viðhalda öflugu skólasamfélagi í samvinnu við íbúa og starfsfólk skólans. Suðurnesjabær er næst stærsta sveitarfélagið á Suðurnesjum með um 3.800 íbúa og um 280 starfsmenn. Í Suðurnesjabæ eru tveir grunnskólar, leikskólar og tónlistarskólar.

Sandgerðisskóli er heildstæður og heilsueflandi grunnskóli með 300 nemendur. Í skólastarfinu er unnið eftir stefnu um „Uppeldi til ábyrgðar“ og lögð áhersla á virðingu gagnvart umhverfinu. Lögð er áhersla á teymiskennslu í lærdómssamfélagi nemenda og starfsmanna þar sem virðing og traust ríkir. Húsnæði skólans er rúmgott og skólalóðin stór og skemmtileg til útivistar. Gott samstarf er við Tónlistarskóla Sandgerðis sem er í húsnæði skólans.

Leiðarljós Sandgerðisskóla eru: vöxtur – virðing – vilji - vinátta

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Veita skólanum faglega forystu
  • Móta framtíðarstefnu skólans innan ramma laga og reglugerða í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla og menntastefnu Suðurnesjabæjar
  • Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi skólans
  • Bera ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun
  • Stuðla að framförum, árangri, velferð og vellíðan nemenda og starfsfólks
  • Bera ábyrgð á samstarfi við aðila skólasamfélagsins
  • Vera í samvinnu við fræðsluyfirvöld í sveitarfélaginu um stefnumótun og ákvarðanatökur

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf grunnskólakennara.
  • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar eða uppeldis- og menntunarfræða
  • Farsæl reynsla af skólastjórnun og faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi
  • Þekking og færni í áætlanagerð og fjármálastjórnun
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
  • Frumkvæði, sjálfstæði og góð skipulagshæfni
  • Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
  • Þekking og/eða reynsla af opinberri stjórnsýslu æskileg

Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst næstkomandi.

Umsóknarfrestur er til og með 19. apríl 2022.
Nánari upplýsingar veita: Inga Steinunn Arnardóttir, inga@hagvangur.is og Katrín S. Óladóttir, katrin@hagvangur.is.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Skólastjórafélags Íslands. Umsókn skal fylgja starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.