Fara í efni

Skert starfsemi Suðurnesjabæjar

Skert starfsemi Suðurnesjabæjar

Í ljósi þess að heitt vatn er farið á Suðurnesjum þarf að grípa til lokana víða í starfsemi sveitarfélagsins og þar til varalögn kemst í gagnið.

Gera má ráð fyrir að heitt vatn haldist á a.m.k. hluta af bænum fram eftir nóttu.

Fimmtudagur 8. febrúar

  • Sundlaugum hefur verið lokað
  • Íþróttamiðstöðvum hefur verið lokað
  • Skólar og félagsmiðstöðvar loka kl.17:00
  • Leik- og grunnskólar ásamt tónlistarskólum starfa til kl. 16:00 að öllu óbreyttu.
  • Ráðhús lokar kl. 15:00

Föstudagur 9. febrúar (og á meðan ekki er heitt vatn á sveitarfélaginu)

  • Allt skólastarf í leik- og grunnskólum auk tónlistarskólum fellur niður.
  • Öll íþróttamannvirki og sundlaugar verða lokuð.
  • Starfsemi Velferðarsviðs verður með eftirfarandi hætti:
    • Hefðbundin starfsemi í sérstöku búsetuúrræði að Lækjamótum
    • Skammtímavistunin Heiðarholt - verður lokuð
    • Björgin í Reykjanesbæ verður lokuð – opið í Lautinni
    • Hæfingarstöðin í Reykjanesbæ – verður lokuð
    • Dagdvöl og félagsstarf aldraðra í Miðhúsum og í Auðarstofu – verður lokuð
    • Heima- og stuðningsþjónusta verður skert en haldið verður uppi nauðsynlegri þjónustu.
  • Söfn - verða lokuð
  • Ráðhús – verða lokuð, hægt að hringja í síma 425-3000 eða senda tölvupóst á netfangið afgreidsla@sudurnesjabaer.is